Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

4.4.2008 | Handboltaakademía

Selfoss90 vann ÍR á útivelli og þurfa nú bara 1 sigur til að vinna deildina

..byrjaði með látum. Eftir 10 mín. var staðan orðin 5 - 10. Loks varð hún 7 - 14 og svo 8 - 18 en þá kom bakslag og ÍR minnkaði muninn í 13 - 18. Sá munur hélst til loka fyrri hálfleiks en þá var staðan 17 - 22.

Síðari hálfleikur byrjaði einnig vel og jókst munurinn aðeins eða hélst þar til um miðjan hálfleikinn en þá náðu ÍR-ingar að minnka muninn í 2 mörk. Okkar menn létu þetta ekki slá sig út af laginu og héldu sig við sinn leik og juku muninn aftur jafnt og þétt þar til 6 marka munur var kominn aftur u.þ.b. 5 mín. fyrir leikslok og þannig hélst það til loka leiksins sem endaði eins og áður sagði 28 - 34.

Í liði ÍR voru Arnór og Þorgeir langbestir og voru okkur frekar erfiðir í þessum leik.

Í liði Selfoss var varnarleikurinn fínn að mestu leiti og sóknin í lagi. Full fá mörk voru skoruð úr hraðupphlaupum m.v. aðra leiki liðsins en það kom bara ekkert að sök. Halli og Gummi voru að spila best og Raggi tók sína spretti. Þá spiluðu Einar og Siggi góða vörn.

Tölfræði:
Gummi  11 mörk úr 16 skotum, 1 tapaður bolti, 5 stolnir boltar, 2 fengin víti og 5 brotin fríköst.
Raggi  6 mörk úr 9 skotum, 2 stoðs., 3 tapaðir boltar, 3 fráköst, 1 varinn bolti og 10 brotin fríköst.
Bjarki  6 mörk úr 11 skotum og 4 brotin fríköst.
Einar  4 mörk úr 5 skotum, 2 tapaðir boltar, 1 varinn bolti og 9 brotin fríköst.
Halli  3 mörk úr 4 skotum, 10 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst.
Siggi  3 mörk úr 5 skotum, 5 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 frákast, 2 varðir boltar og 12 brotin fríköst.
Sissi  1 mark úr 1 skoti og 3 brotin fríköst.
Guðbjörn og Hemmi komu ekki við sögu að þessu sinni.
Helgi varði 21 skot þar af 1 víti (43%).

Næsti leikur er á þriðjudaginn kemur (8. apríl kl. 20:30) þegar Haukar koma í heimsókn. Endilega fjölmennið.

Áfram Selfoss


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta