Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.4.2008 | Handboltaakademía

Frábćr sigur á ÍR í 1. deildinni

ÍR vann fyrsta leikinn í Austurbergi með 2 mörkum og þeir unnu annan leikinn einnig með 2 mörkum á Selfossi. Báðir leikirnir voru jafnir þegar örfáar mínútur voru til leiksloka en ÍR kláraði þá á reynslunni. Selfyssingar unnu svo 3ja leikinn með 1 marki í Austurbergi þar sem úrslitin réðust á síðustu mínútu leiksins. Loks vann Selfoss seinni heimaleik sinn núna á föstudaginn 27 - 26 einnig á lokaandartökum leiksins eftir að hafa verið 2 mörkum undir og leikmanni færii þegar u.þ.b. 2 mín. voru til leiksloka. Okkar menn skoruðu síðustu 3 mörk leiksins og unnu sætan sigur. 

Okkar lið hefur oft tapað stigum á lokakaflanum í undanfarin tvö tímabil en nú uppá síðkastið hafa þessir jöfnu leikir verið að enda með 1 eða 2 stigum okkur í hag. Það er vonandi að liðið sé að verða reynslunni ríkari í vetur og sé að taka nauðsynleg skref í átt að því að verða tilbúið í úrvalsdeildina.

Leikurinn byrjaði samt ekkert glæsilega fyrir okkar menn. Staðan var 1 - 4 eftir 16 mínútur og sóknarleikurinn í molum auk þess sem að Lárus var að verja frábærlega í markinu hjá ÍR. Það var augljóst að liðið saknaði línumannanna sinna sárlega en Michal tók út leikbann og Gústi er meiddur. Smám saman komust þó okkar menn inn í leikinn. Einar Héðins kom á línuna og þá fyrst fótu okkar menn að finna leiðina að markinu og náðu að jafna 11 - 11 sem var staðan í hálfleik. Varnarleikurinn var mjög góður og fyrir aftan hana stóð "gamli" og varði alls 13 skot í fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var mest í járnum og liðin skiptust á að hafa nauma forystu. Okkar menn náðu aldrei að leiða með meiru en 1 og ÍR aldrei með meira en 2 mörkum.  Varnarleikur beggja liða hélt áfram að vera góður og var það allan leikinn. Hjá ÍR hrökk Kristinn Björgúlfsson í gang í seinni hálfleik og skoraði mörg góð mörk og hélt sínu liði á floti. Hjá Selfoss var það Atli Kristins sem dró vagninn í sókninni í seinni hálfleik. Þegar rúmar 2 mín. voru eftir af leiknum þá var Sjóli rekinn útaf og staðan 24 - 26 fyrir ÍR en "gamli" varði vítið og Selfyssingar skoruðu 25 - 26. ÍR fær tækifæri á línunni en vippa í stöng. Selfoss fer í sókn og skorar og jafnar 26 - 26. Aftur koma ÍR-ingar í sókn og Brynjar Steinarsson brýst í gegnum vörnina en aftur varði "gamli" og Selfoss fer í sókn þegar 24 sek. eru eftir. Það er svo loks 7 sekúndum fyrir leikslok að Atli hamrar hann í netið af 10 metrum með mann í sér og Selfoss vinnur leikinn.

Maður leiksins hjá Selfossi var Atli Kristins en hann fann loksins fjölina sína og gaman að sjá svona frammistöðu en þetta hefur varla sést síðan í október. Vonandi að hann sé kominn á "rétta" braut til loka tímabilsins.

Hjá ÍR var Lárus markmaður bestur í fyrri hálfleik og Kristinn þeim seinni.

Markaskorarar ÍR:
Kristinn Björgúlfsson 10/2
Davíð Georgsson 4/3
Brynjar Steinarsson 4
Sigurjón Björnsson 4
Ólafur Sigurgeirsson 2
Halldór Hinriksson 1
Hrannar Máni Gestsson 1

Höfum ekki tölur um markvörslu ÍR


Markaskorarar Selfoss:
Atli Kristinsson 13
Ragnar Jóhannsson 4
Hörður Bjarnarson 3
Einar Héðinsson 3
Guðni Ingvarsson 2
Bjarki Elísson 1
Ívar Grétarsson 1/1

Sebastian varði 23/1 (48%)
Birkir kom inná í 1 víti en tókst ekki að verja

Einar Gunnar Sigurðsson var liðstjóri í þessum leik og stóð sig mjög vel. Menn höfðu það á orði að það sé langt síðan varnarleikurinn hafi verið svona góður og að hann hefði náð að lauma inn nokkrum punktum til þess að bæta hann svona hressilega. Þá hefur það líka heyrst að Einar hafi lagt það undir fyrir leikinn að ef að sigur ynnist á ÍR þá myndi hann spila næsta vetur : )


Nú er ljóst að haukar verða meistarar og að ÍBV og UMFA falla aftur niður í okkar deild. FH er farið upp og orðið deildarmeistari. Baráttan um 2 sætið í 1 deild er það eina sem er einhver spenna um núna í apríl. Það verður blóðug barátta á milli Víkings og ÍR um að fara upp með FH. Bæði lið eiga eftir að spila við FH og svo loks innbyrðis. Sá leikur gæti orðið hreinn úrslitaleikur um að fara upp og það gæti orðið stórskemmtilegt að komast á þann leik og sjá hann.

Næsti leikur Selfoss er næsta föstudag á móti Víkingi í víkinni en næsti heimaleikur verður á móti deildarmeisturum FH og biðjum við fólk að fjölmenna á leikinn og skapa áfram þessa frábæru stemmningu sem hefur einkennt heimaleiki okkar í vetur.


Áfram Selfoss

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta