Ramunas Mikalonis hefur verið hjá okkur í mörg ár og er sestur hér að með fjölskyldunni sinni. Hann hefur gengið í gegnum súrt og sætt með liðinu undanfarin ár og ávallt sýnt tryggð við félagið þrátt fyrir fjölda tilboða frá Reykjavík.
Jæja þá að nokkrum léttum spurningum..
Aldur: 32 ára
Ár í boltanum: 22 ár
Fyrsti leikur í M.fl.: 1996 í Litháen
Fyrsti leikur með Selfoss: 2000
Fjöldi leikja með Selfoss: um 400
Fjöldi leikja í Evrópukeppni: 2 með liði frá Litháen
Fjöldi landsleikja: 10
Fyrri félög: Gelezinis Vilkas í Litháen
Bestu liðsfélagar: Guðmundur Ingi "Strumpur Bljed"
Besti þjálfari sem þú hafðir: Einar Guðmundsson
Hápunktur ferilsins: Vera valinn besti leikmaður í liðinu
Mestu vonbrigði ferilsins: Meiðast tvisvar illa og vera lengi frá
Besta ákvörðun: Koma til Íslands
Einhver eftirsjá: Krossbandaslit 23 ára, spilaði ekkert með landsliðinu eftir það
Mesta afrek að þínu mati: Að ná að spila svona lengi og hafa gaman að því
Slakasta frammistaða að þínu mati: Alltaf þegar ég sit á bekknum í leikjum
Uppáhaldshús til að spila í: Vallaskóli á Selfossi
Erfiðasta hús að spila í: Laugardalshöll
"Léttasti" andstæðingur: Þróttur
"Erfiðasti" andstæðingur: FH
Comment á erfiðari spurningar..
Fékkstu tækifæri á atvinnumennsku? Já
Ferillinn, ertu sáttur? Já
Verstu meiðsli í gegnum tíðina? Krossbandaslit og hnémeiðslin í fyrra
Handbolti á Íslandi í dag? Sterkur
Besti Lithái sem hefur spilað á Íslandi að þínu mati? Savukynas Gintaras
Handboltinn á Selfossi? Ágætur
Svara að lokum nokkrum í þyngri kantinum..
Lífsspeki? Ekki segja sorrý (þess má geta að þetta er innanhúshúmor hjá M.fl.)
Trúirðu? Já
Hvað kemur þér mest á óvart? Skrítnar ákvarðanir dómara í leikjum
Við þökkum Mikalonis fyrir stutt en hnitmiðuð svör og þar sem öldungarnir eru ekki fleiri en þetta þá er þessu lokið að sinni. Kannski fikrum við okkur niður í ungu mennina. Við sjáum til.
