Það var strax ljóst í gær að okkar menn ætluðu að klára þetta í þessum leik. Haukar voru eina liðið sem gat náð þeim í baráttunni um deildartitilinn. Þrátt fyrir veikindi hjá Gumma, Einari og Halla þá var ekki að sjá að það truflaði á nokkurn hátt einbeitingu liðsins. Eftir að hafa komist í 5 - 0 komu Haukar eðlilega til baka og náðu mest að minnka muninn í 2 mörk eða 9 - 7. Þá tók Selfossliðið aftur kipp og komst í 18 - 9 en hálfleikstölur voru 18 - 10.
Munurinn hélst á bilinu 6 - 9 mörk allan seinni hálfleikinn og endaði loks með 8 marka sigri okkar stráka. Mikil fagnaðarlæti og sigurgleði var hjá strákunum í leikslok enda búnir að uppskera laun erfiðrar vinnu og langrar keppni.
Tölfræði:
Bjarki 8 úr 10, 3 tapaðir boltar, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Raggi 7 úr 10, 4 stoðs.,3 tapaðir boltar, 1 stolin bolti, 2 varðir boltar og 18 brotin fríköst
Gummi 5 úr 10, 1 stoðs., 3 stolnir boltar og 8 brotin fríköst
Halli 5 úr 8, 9 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 stolin bolti, 2 fengin víti og 3 brotin fríköst
Einar 3 úr 4, 1 stoðs., 3 varðir boltar og 18 brotin fríköst
Siggi 2 úr 8, 4 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 varinn bolti og 10 brotin fríköst
Hemmi 1 úr 2 og 6 brotin fríköst
Guðbjörn 0 úr 1
Sissi 1 fengið víti
Helgi varði 20 skot (46%)
Staða efstu liða...
| 1. |
Selfoss |
17 |
15 |
1 |
1 |
627:456 |
171 |
31 |
| 2. |
Haukar |
18 |
14 |
0 |
4 |
524:466 |
58 |
28 |
| 3. |
FH |
18 |
12 |
0 |
6 |
592:549 |
43 |
24 |
| 4. |
Fram |
17 |
10 |
1 |
6 |
485:467 |
18 |
21 |
| 5. |
ÍR |
18 |
8 |
1 |
9 |
466:499 |
-33 |
17 |
Til hamingju strákar... Áfram Selfoss