Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

11.4.2008 | Handboltaakademía

Alltaf von að þeir fjölmenni

Sebastian Alexandersson, þjálfari 1. deildar liðs Selfossar, ræðir stórleikinn gegn Víkingi sem fram fer í Víkinni kl. 19:00 í kvöld.

Hvernig leggst í þig að fara í Víkina í kvöld?
Allir leikir leggjast vel í mig. Við erum jú að standa í þessu til þess að spila leiki.

Hver verður lykkillinn að leggja Víking að velli?
Trúa á okkar leikaðferð í 60 mín. og treysta á þá þjálfun sem við höfum lagt á okkur í vetur.

Er þetta ekki leikur upp á líf eða dauða fyrir ykkur upp á möguleikana að komast upp?
Nei : ) Þessi leikur er upp á líf eða dauða fyrir Víking. Þeir hafa lagt allt undir til þess að komast upp í vetur. Við höfum margoft sagt það í vetur að okkar markmið sé að ná 3 sætinu. Við ætlum upp á næsta ári skv. þeirri áætlun sem við gerðum fyrir tæpum 2 árum. Þetta er hins vegar mjög mikilvægur leikur fyrir okkur til þess að ná 3 sætinu og til þess að leggja það í vana okkar að vinna alla leiki. Held að stressið verði allt þeirra megin.

Býstu við góðri stemmingu í Víkinni í kvöld?
Ég vona það. Víkingar hafa verið frekar slappir í að mæta á leiki liðsins í vetur sem ég skil ekki því að Víkingur er með mjög gott lið sem spilar skemmtilegan bolta og það er alltaf nóg að gerast í leikjunum hjá þeim. Hins vegar er alltaf einhver von að þeir fjölmenni því að það mættu jú margir á bikarleikinn þeirra á móti Val á dögunum. Ég skora á fólk að mæta því að leikmönnnum beggja liða finnst alltaf skemmtilegast að spila í góðri stemmningu.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta