14.4.2008 | Handbolti
Stórt tap gegn Víkingum
Á föstudaginn lék meistaraflokkur gegn Víkingum í Reykjavík. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik, sú varð reyndar ekki raunin og var stórt tap niðurstaðan 34-17. Það var reyndar vitað fyrirfram að leikurinn yrði Selfyssingum erfiður þar sem liðið saknaði nokkurra lykilmanna. Byrjunarliðið í leiknum var mjög ungt og voru ungu strákarnir greinilega ekki komnir niður á jörðina eftir glæsilegan sigur á ÍR fyrir stuttu.
í lið Selfoss vantaði Baldur sem er með slitið krossband, Michal sem var í banni, Hörð sem var með flensu og Gústa sem er meiddur.
Í hálfleik stóð 16-9 fyrir Víkinga eftir að okkar menn höfðu farið illa með fjölmörg dauðafæri og skorað nokkur mörk sem dæmd voru af vegna línu. Það gekk má segja ekki neitt upp. Í seinni hálfleik gekk ekki betur og Víkingar unnu 34-17. Okkar menn sáu aldrei til sólar, mikið af sóknarfeilum og illa ígrunduðum skotum sem og fjölmörg dauðafæri misnotuð er ekki beint uppskriftin að farsælum sóknarleik.
Það sem drepur mann ekki styrkir mann eins og þar stendur og því höfum við fulla trú á því að Selfoss vinni FH á föstudaginn næsta hér á Selfossi.
Arnar fyrirliði hafði þetta að segja eftir leik:
"Við náðum okkur bara ekki í gang í leiknum. Okkur vantar vissulega nokkra lykimenn, menn eins og Baldur og Michal sem hefðu hentað vel í leikinn kvöld og einnig söknum við Harðar. Því miður mættum við ekki nægjanlega tilbúnir í verkefnið og uppskárum eftir því. Við erum með ungt lið sem var enn hátt uppi eftir sigurinn á ÍR fyrir stuttu. Ég hvet það fólk sem hefur stutt okkur að mæta á leikinn á föstudaginn gegn FH. Við erum gríðarlega þakklátir fyrir þann stuðning sem við höfum fengið og stuðningur okkar fólks skiptir miklu".
Verulega hallaði á Víkinga í dómgæslunni og fengu Selfyssingar alla dóma, hvern og einn einasta með sér í leiknum en því miður náðu strákarnir okkar engan veginn að nýta sér það.
Markaskor:
Ívar 4
Atli 3
Bjarki Már 3
Ragnar 3
Guðmundur Árni 3
Kalendauskas 1
Birkir varði 11 skot og Halldór 7