Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.4.2008 | Handboltaakademía

Selfyssingar í atvinnumennsku

Hannes Jón Jónsson og fyrrverandi leikmaður Selfoss hefur gert 2 ára samning við Hannover Burgdorf, sem er í 6. sæti í 2.deild nyrðri í Þýskalandi, en þetta er sama félag og Robertas Pauzuolis leikur með. Hannes Jón, sem er 28 ára lék með Selfoss á árunum 2000-2002 og lék þá m.a. með Robertas og verða þeir því samherjar á ný hjá þýska atvinnumannaliðinu.

Í aldamótaliðinu voru líka Þórir Ólafsson er einnig atvinnumaður í Þýskalandi, Valdimar Þórsson er atvinnumaður í Svíþjóð og Gísli Guðmundsson lék á síðasta tímabili í Danmörku. Það hefði verið gaman ef Selfoss hefði náð að halda þessum leikmönnum á Selfossi en til þess þarf öflugri stuðning við félagið og traustari fjárhag.

Í dag er staðan svipuð og um aldamótin. Nokkrir leikmenn sem eiga án efa eftir að láta að sér kveða í landsliði og atvinnumennsku, og má þar á meðal nefna þá Ragnar Jóhannsson, Guðmund Árna Ólafsson, Atla Kristinsson og Birki Bragason. Að auki eru 5-10 strákar sem gætu sprungið út á næstu árum.

Vonandi ber félaginu gæfa til að skapa þessum leikmönnum bestu hugsanlegar aðstæður og Selfoss verði í baráttu um titla á komandi misserum.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta