Í leik Selfoss og Víkings á föstudaginn síðastliðinn fengu tveir Selfyssingar rautt spjald. Ramunas Mikalonis elsti leikmaður Selfyssinga og Sebastían Alexandersson þjálfari liðsins.
Þeir verða því í banni í leiknum á föstudaginn kemur. Sá leikur er hér heima gegn toppliði FH.
Ramunas fékk sitt spjald að því er talið grófa líkamsárás og Sebastían nældi sér í sitt spjald fyrir eitthvað sem enginn hefur enn áttað sig á. En réttsýnir og sanngjarnir dómarar leiksins hafa eflaust allt til síns máls og spjöldin því réttmæt. Vonandi læra Rambó og Basti af þessu og haga sér betur framvegis.
