Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.4.2008 | Handbolti

Grímsnesingar í viđtali

Heimsíðan tók þá Guðjón Ágústsson frá Stærri Bæ og Magnús Nielsen Filmer frá Borg tali á æfingu um daginn. Þeir eru báðir úr Grímsnesinu og eru keyrðir á æfingar á Selfoss þrisvar sinnum í viku. Þeir eru tveir af 15 -20 krökkum sem æfa handbolta á Selfossi en búa í sveitunum í kring.

Hversu lengi hafið þið æft handbolta á Selfossi?
Guðjón: Þetta er annað árið mitt,ég byrjaði í fyrra hjá Adda.
Magnús: Ég byrjaði í haust, Guðjón sagði mér af æfingunum.

Hvernig gengur ykkur að komast á æfingar? Vel, foreldrar okkar skiptast á að keyra og við komust alltaf þó það sé slæmt veður eða færð.

Hvernig er svona venjulegur dagur hjá ykkur þegar það er æfing? Við erum í skólanum til kl. 15:30. Þá erum við sóttir og við förum á æfingu á Selfossi sem byrjar kl. 16:00. Foreldrarnir nota tækifærið og fara í búð á Selfossi. Svo er komið heim fyrir kvöldmat og slappað af.

Hvernig líkar ykkur við Selfoss-strákana og hvernig eru æfingarnar? Mjög vel, þetta eru skemmtilegir strákar og okkur var mjög vel tekið. Æfingarnar eru góðar, mikill hraði og skemmtilegur handbolti.

Hvað stöðu spilið þið og hver stefnið þið í handboltanum?
Guðjón: Ég er örvhent skytta og get líka spila í horninu. Ég stefni á að leika með meistaraflokki Selfoss og að komast í landsliðið.
Magnús: Ég byrjaði í haust sem markvörður en hef verið að spila línu og horn.

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart þegar þið fóruð að æfa handbolta á Selfossi? Nei, ekkert sérstakt, krakkarnir á Selfoss er mjög svipaðir krökkunum í Grímsnesinu.

Heimasíðan þakkar þessum efnilegu piltum fyrir spjallið. Þeir eru góð viðbót við þann stóra hóp barna og unglinga sem stundar handbolta á Selfossi.

Guðjón til vinstri og Magnús til hægri.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta