Kl. 19:15 í kvöld mæt Selfyssingar FH-ingum í 1. deild karla. Hafnfirðingar hafa nú þegar unnið sig upp í efstu deild og óskum við þeim til hamingju með að vera orðnir deildarmeistarar. Við hvetjum okkar FRÁBÆRA stuðningsfólk að mæta á pallana og öskra strákana okkar áfram. Vonandi fáum við jafn kröftugan leik og á móti ÍR um daginn.
Það skal þó vera alveg á hreinu að FH-ingar koma ekki hingað til að ná í tvö auðveld stig. Okkar menn hafa nú þegar tapað þrisvar fyrir þeim í vetur og fjórum sinnum er einfaldlega ekki boðlegt.
Við hvetjum því okkar FRÁBÆRA stuðningsfólk til að mæta og öskra strákana okkar áfram og hvetja þá til dáða. Það er hverju liði mikilvægt að eiga svona frábæra stuðningsmenn líkt og Selfoss og er félagið öfundað af mörgum vegna þessa.
