Selfyssingurinn Þórir Ólafsson, leikmaður TuS N-Lübbecke í Bundersligunni, ræddi framtíð sína við blaðamann DV á dögunum. Þar kom m.a. fram að Þórir hefði áhuga á að vera áfram í atvinnumennsku en nokkur félög höfðu falast eftir kröftum hans þ.a.m. Fram. Það er alveg ljóst að lið Selfoss sækist líka eftir þessum snjalla leikmanni en á Selfossi á Þórir sínar rætur og mun vonandi leika aftur með Selfoss áður en ferli hans líkur.
„Mig langar að vera áfram í atvinnumennsku. Okkur fjölskyldunni líður vel í Þýskalandi og stefnan er að vera úti í 2-3 ár til viðbótar allavega," sagði Þórir Ólafsson við DV í gær en háværar raddir hafa verið um að hornamaðurinn knái sé á teikniborði Viggós Sigurðssonar hjá Fram og heimildir DV herma að Viggó hafi haft sambandvið Þóri. „Ég veit hvernig deildin er heima og að hverju maður gengur. Það er auðvitað frábært að vera undir stjórn Viggós enda frábær þjálfari," sagði Þórir en ítrekaði að hann langaði að vera áfram erlendis.
Þórir leikur með liði Tus Lubecke í Þýskalandi og vegna mikillar fallbaráttu skýrast mál hans ekki strax. „Það er svipað í gangi hjá stjórninni og var í fyrra. Við vitum ekki enn hvort okkar bíður úrvalsdeildeða 1. deildin þannig að mín mál eru í biðstöðu. Samningur minn rennur út eftir tímabilið," segir Þórir.
„Það hafa verið einhverjar fyrirspurnir um mig frá öðrum liðum en umboðsmaður minn hefur sagt að málin skýrist eftir svona 2-3 vikur. Þá verðum við að taka ákvörðun um hvar ég verð á næsta ári. Við stjórnin höfum ekki talað mikið saman en ef samningar nást stendur ekkert á mér að leika í 1. deildinni í Þýskalandi. Við erum núna búnir að vera í fallbaráttu tvö ár í röð þannig að ég get alveg eins verið í toppbaráttu í 1. deildinni," segir Þórir sem býst við erfiðum lokaumferðum hjá sínum mönnum.
„Við vorum í svipuðum málum í fyrra þar sem við þurftum að vinna mikilvæga leiki undir lokin og það heppnaðist þá. Ég sé þetta ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni en ég er nokkuð bjartsýnn," sagði Þórir Ólafsson að lokum.
ÚR DV (tomas@dv.is) 16.04.2008
Þórir kom í heimsókn á æfingu hjá 6.flokki í janúar
