Á föstudagskvöldið tóku Selfyssingar á móti deildarmeisturum FH í 1. deild karla í handknattleik. Basti og Mikalonis voru báðir í banni eftir leikinn gegn Víkingum og þurfti Addi því að stjórna liðinu í leiknum.
Um 300 manns lagði leið sína á völlinn enda um stórleik að ræða. Selfyssingar byrjuðu leikinn mun betur og voru leikmenn mjög einbeittir og staðráðnir í að tapa ekki í fjórða sinn fyrir FH í vetur.
Selfoss byrjuðu leikinn mun betur og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður leiddu heimamenn með sjö mörkum. 14-7 og var frábært að sjá hvað menn börðust hver fyrir annan. Staðan í hálfleik var 21-13 Selfoss í vil.
Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki eins vel. Menn slökuðu full mikið á og hleyptu FH full mikið inn í leikinn, með Aron Pálmars í fararbroddi. FH minnkuðu muninn og var farið að fara um marga í stúkunni, leikmennirnir virtust vera orðnir of stressaðir og léku ekki þann leik sem liðið sýndi í fyrri hálfleiknum.
Þegar staðan var orðin 25-22 fyrir Selfoss tóku menn sig á og juku muninn jafnt og þétt. Liðið fór að leika eins og það gerir best og sigruðu að lokum með 10 marka mun, 42-32. Frábær sigur og sýndu menn hvað í þeim býr eftir tapið gegn Víkingum.
Selfoss liðið hefur þroskast mikið í vetur enda mjög ungt miðað við mörg önnur lið. Leikmenn eru að fá meiri reynslu. En það sem liðið þarf til að komast í efstu deild er stöðugleika, en hann er það helsta sem hefur vantað í vetur.
Markaskorun Selfoss:
Atli Kristins 8
Ragnar 7
Guðni 7
Michal 6
Hörður B. 6
Kalendauskas 3
Gumðmundur Árni 3
Ívar 2
Birkir varði 21 skot,
og Dóri 1 víti (með toppstykkinu)
ÁSS
