Hún Soffía í MJÓLKURBÚÐINNI kom færandi hendi á æfingu hjá ´98 strákunum og gaf þeim öllum æfingabúninga með þeirra eigin númeri. Strákarnir munu keppa nú um helgina í síðustu umferð Íslandsmótsins í 7. flokki, en leikið er á Seltjarnarnesi. Þessi árgangur hefur verið einstaklega sigursæll í vetur og unnið alla sína leiki í 7. flokki. Strákarnir urðu á dögunum deildarbikarmeistarar í 6. flokki C. Soffía á mjög efnilegan strák í þessum flokki. Hún er mikil stuðningsmaður strákanna og mætir á alla leiki þeirra. Handknattleiksdeildin vill þakka MJÓLKURBÚÐINNI fyrir þessa skemmtilegu gjöf.
