Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.4.2008 | Handboltaakademía

Selfoss90 komiđ í undanúrslit Íslandsmótsins

Eftir aðeins 10 mín. var staðan orðin 10 - 5 og eftir það var Selfoss í bílstjórasætinu til leiksloka. Allir leikmenn liðsins komu við sögu og fengu lykilleikmenn að pústa vel á milli þess sem þeir keyrðu á fullu. Okkar strákar gáfu aldrei færi á sér í þessum leik en það hefur oft loðað við þetta lið að slaka á þegar forysta næst. Það eru augljós þroskamerki á liðinu og það er orðið mun heilsteyptara en það var.

Þórsliðið er skipað mörgum vel spilandi og spennandi leikmönnum og því var full ástæða fyrir okkar stráka að taka leikinn mjög alvarlega. Oddur Grétarsson var allt í öllu hjá Þór og þá áttu hornamenn Þórs góðan dag auk þess sem að Páll Sævar markmaður varði vel í seinni hálfleik. Þá munaði miklu fyrir Þór að Sigmar Ármannsson er meiddur á skothendi og gat lítið beitt sér í sókninni.

Hjá Selfossi var Gummi Árni frábær og Siggi Már spilaði mjög vel bæði í vörn og sókn. Einar skilaði sinni vinnu mjög vel og Halli stjórnaði sókninni eins og herforingi. Bjarki spilaði meiddur og háði það honum aðeins. Raggi var rólegur í leiknum enda aðrir að draga vagninn að þessu sinni. Bekkurinn átti góða innkomu og voru mikilvægir því að lykilmenn gátu fengið nauðsynlega hvíld. Þá má ekki gleyma Helga en hann varði mjög vel allan leikinn. Það er eiginlega hætt að vera fréttnæmt að hann sé að verja yfir 20 skot í leik.

Tölfræði:
Gummi  12 úr 16, 4 stoðs., 3 tapaðir boltar, 4 stolnir boltar, 2 fráköst, 1 fengið víti, 1 varinn bolti og 3 brotin fríköst
Siggi  8 úr 10, 5 stoðs., 4 tapaðir boltar, 2 fráköst, 1 varinn bolti og 6 brotin fríköst
Einar  7 úr 9, 1 tapaður bolti, 3 fráköst, 1 fengið víti, 2 varðir boltar og 3 brotin fríköst
Bjarki  5 úr 10, 1 stoðs., 1 fengið víti og 2 brotin fríköst
Raggi  4 úr 9, 2 stoðs., 2 fráköst, 1 fengið víti, 2 varðir boltar og 4 brotin fríköst
Hemmi  3 úr 4, 2 tapaðir boltar og 9 brotin fríköst
Halli  2 úr 5, 12 stoðs., 1 frákast, 2 fengin víti og 3 brotin fríköst
Sissi  1 tapaður bolti og 3 brotin fríköst
Guðbjörn  1 frákast og 1 brotið fríkast
Helgi varði 26 skot þar af 3 víti (46%)

Næst á dagskrá er undanúrslitaleikur á móti annað hvort Fram eða Stjörnunni sem spila í kvöld. Tímasetningar á leikjunum um helgina verða auglýstar síðar. Þá má líka sjá inn á hsi.is.

Frábært strákar og áfram Selfoss!

Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta