Gamla myndin að þessu sinni er af meistaraflokki karla árið 1999. Þarna má greina snillinga eins og Halla Geir áberandi í efstu röð. við hliðina á honum er Ómar Helga varnartröll sem væri hægt að nota ennþá í að berja á mönnum í vörninni. Gústi Ketils var öflugur í þessu liði sem og Þórir Ólafs sem nú leikur í Þýskalandi. Jói Guðmunds var aðalmarkvörður og þeir Steindór og Gummi Magg sáu um að vera í ljósabekkjunum. Þeir eru ívið dekkri en Jón sem er þó dökkur á hörund frá náttúrunnar hendi.
