Unglingaflokkur karla vann í dag stórsigur á Stjörnunni í undanúrslitum íslandsmótsins í handbolta. Lokatölur urðu 35-20. Selfoss liðið hafði talsverða yfirburði allan leikinn og leikur á morgun til úrslita við Hauka sem unnu FH í tvíframlengdum leik. Úrslitaleikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti kl 18:00 sunnudag. Um að gera að koma og hvetja strákana til sigurs.
Þetta var góður dagur fyrir yngriflokkanna á Selfossi því 7.flokkur drengja vann alla sína leiki í síðustu umferð íslandsmótsins og fóru A og B liðið taplaus í gegnum veturinn. Meira síðar
Unglingaflokkur sem varð deildarmeistari á dögunum.
7.flokkur unnu allt í vetur
