Það er fjarri lagi að leikurinn hafi verið vel leikinn. Varnarleikurinn var slakur mest allan leikinn og eins og alltaf þegar Selfoss hefur mætt Haukum 2 þá virtust okkar menn bara ekki geta spilað sinn leik. Selfoss leiddi þó allan leikinn og komust Haukar aldrei yfir í leiknum en að sama skapi þá voru þeir alltaf að minnka 3-5 marka forystu allt of oft niður í 1 mark. Að lokum hafiðst þetta með þolinmæði og stórleik Mikalonis og Sjóla sem skiptust á að skora að vild í seinni hálfleik.
Það vantaði Baldur, Atla Kristins, Ragnar og Guðmund í þetta skipti en það kom ekki að sök þar sem aðrir leikmenn tóku við hlutverkum þeirra með sóma. Eyþór og Sjóli skiluðu góðum leik og Hörður og Guðni stóðu vaktina einir í hornunum að þessu sinni og stóðu sig þokkalega.
Tölfræði:
Sjóli 8 úr 8 og 4 brotin fríköst
Mikalonis 8 úr 13, 4 stoðs., 1 varinn bolti og 5 brotin fríköst
Michal 7 úr 8 1 stoðs., 3 boltum náð, 1 fengið víti og 7 brotin fríköst
Hörður 5 úr 7 og 1 fengið víti
Guðni 4 úr 7, 1 bolta náð og 7 brotin fríköst
Kalendauskas 3 úr 4, 3 stoðs., 1 bolta náð og 2 brotin fríköst
Ívar 1 úr 1, 7 stoðs., 1 bolta náð og 2 brotin fríköst
Eyþór 1 úr 3, 1 stoðs., 1 fengið víti og 2 brotin fríköst
Kúldi 1 stoðs. og 1 brotið fríkast
Birkir varði 20 skot (40%)
Nú á liðið 1 leik eftir í þessari síðustu umferð og það í sínum sterka heimavelli. Niðurstaðan er glæsileg í þessari umferð og með sigri á föstudag þá vinnur liðið 5 leiki í umferðinni gerir 1 jafntefli en tapar aðeins 1 leik.
Selfyssingar fjölmennum á síðasta leik vetrarins og klárum gott tímabil með liðinu. Það er möguleiki á því að enda tímabilið með 31 stig. Í fyrra hlaut liðið 19 stig og deildin í ár er miklu sterkari en þá. Framfarir liðsins hafa því verið mjög miklar og það eru mörg ár síðan M.fl. Selfoss endaði keppnistímabil yfir 50% vinningshlutfalli.
Áfram Selfoss
