Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

28.4.2008 | Handboltaakademía

3. flokkur ÍSLANDSMEISTARAR

..spilaði ekki meira í leiknum. Þá var Einar kominn með 2 brottvísanir eftir aðeins 15 mín. en hann er kjölfestan í varnarleik liðsins. Halli spilaði puttabrotin á vinstri hendi og þá meiddist Hermann líka stuttu eftir að hann kom inná og útlitið alls ekki gott. En strákarnir voru svo ákveðnir og svo tilbúnir að berjast fyrir þessu að þetta beit ekkert á þá og þeir þjöppuðu sér bara enn frekar á bak við hvorn annan.

Siggi meiðist þegar staðan er 8 - 4 fyrir okkar menn og þeir auka forystuna í 12 - 7. Haukar taka leikhlé og endurskipuleggja sig og ná betri tökum á leiknum og staðan í hálfleik er 19 - 15 fyrir Selfoss eftir að Halli skorar á síðustu sekúndu hálfleiksins.

Þegar síðari hálfleikur byrjar þá er Hermann kominn aftur inná og við það þéttist vörnin til muna og Selfoss nær fljótlega góðu forskoti og kemst í 24 - 17. Haukar neita að leggja árar í bát og skora 3 mörk í röð og staðan 24 - 20. Þá tekur Selfoss aftur kipp og kemst í 27 - 21 og 15 mín. eftir.

Aðeins 8 mín. seinna eru Haukar komnir yfir í fyrsta skipti 27 - 28 og aðeins 7 mín. eftir. Selfoss jafnar aftur 29 - 29 og kemst svo yfir 30 - 29 og loks 31 - 29. Þá taka Haukar áhættu og koma framar á völlinn en það tókst ekki og lokatölur urðu 33 - 30.


Við tökum hattinn ofan fyrir Haukum sem börðust aftur inn í leikinn með miklum vilja og ákveðni. Þeirra bestu menn í leiknum voru Stefán, Tjörvi og Stefán markmaður. Það eru margir mjög efnilegir leikmenn í þessu Haukaliði. En þess má geta að Haukar voru eina liðið sem átti sjens á deildarbikarnum í lokin þannig að Selfoss var að berjast um báða þessa titla við Hauka í vetur.


Hjá Selfoss væri ósanngjarnt að taka einhvern einn út eftir þennan leik. Þetta var sigur allra leikmanna og sigur liðsheildarinnar. Liðið er gríðarlega vel skipulagt og því er þessi sigur enn sætari því að skipulagið riðlaðist mikið við brotthvarf Sigga. Þeir sýndu ótrúlega samstöðu og vilja í erfiðum aðstæðum og gegn sterku liði. Menn stigu upp á réttum tíma. Það verður þó að hrósa Einari sérstaklega fyrir það að spila í 45 mín. á 2 brottvísunum og vera samt jafn öflugur í vörninni og áður. Sérstaklega þar sem hann þurfti hvað eftir annað að lenda einn á einn en klára hlutina án þess að fá 3 brottvísunina. Það er ótrúlegt afrek hjá jafn ungum leikmanni að sýna aðra eins reynslu.


Liðið spilaði 27 leiki í vetur í 3 mótum. Í deildinni unnu þeir 16 leiki, gerðu 1 jafntefli og töpuðu 1 leik fyrir FH á útivelli. Í bikarkeppninni töpuðu þeir fyrir FH í framlengdum leik á heimavelli. Í úrslitakeppninni unnu þeir alla 4 leikina. Niðurstaðan í vetur er því 2 titlar af 3, 24 sigrar, 1 jafntefli og aðeins 2 töp. Án efa besta lið ársins í unglingaflokki að þessu sinni. Tölfræðin lýgur ekki.


Nú taka við mismunandi hlutir hjá leikmönnum. Sigga bíða hækjur og endurhæfing, Halla bíður gifs, aðrir fara í verkefni með landsliðinu og enn aðrir halda áfram að æfa. Skoða má tölfræði helgarinnar hér að neðan.


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Tölfræði í úrslitaleiknum gegn Haukum:

Gummi  12 úr 18, 1 stoðs., 3 boltum náð og 6 brotin fríköst
Raggi  7 úr 10, 4 stoðs., 1 bolta náð, 3 varin skot og 15 brotin fríköst
Bjarki  7 úr 10, 2 stoðs., 1 bolta náð, 1 varið skot og 2 brotin fríköst
Halli  3 úr 5, 5 stoðs., 1 bolta náð, 3 fengin víti og 2 brotin fríköst
Siggi  2 úr 2, 1 bolta náð (meiddist svo)
Einar  1 úr 1, 1 stoðs., 2 fengin víti, 4 skot varin og 12 brotin fríköst
Hemmi  1 úr 3, 1 stoðs., 2 boltum náð, 1 varið skot og 6 brotin fríköst
Guðbjörn  0 úr 1, 1 bolta náð og 1 brotið fríkast

Helgi varði 20 skot þar af 1 víti (40%)

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Tölfræði í undanúrslitaleik á móti Stjörnunni:

Bjarki  11 úr 16, 3 stoðs., 1 bolta náð og 1 brotið fríkast
Gummi  7 úr 12, 2 stoðs., 1 boltum náð, 1 varið skot og 6 brotin fríköst
Einar  5 úr 7, 3 bolta náð, 1 fengið víti, 3 varin skot og 6 brotin fríköst
Siggi  4 úr 6, 4 stoðs., 1 bolta náð 1 varið skot og 8 brotin fríköst
Guðbjörn  3 úr 3 og 1 varið skot
Raggi  3 úr 9, 5 stoðs., 1 bolta náð, 1 varið skot og 5 brotin fríköst
Halli  1 úr 3, 11 stoðs., 1 bolta náð og 1 brotið fríkast
Sissi  1 úr 1, 1 fengið víti, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Hemmi  0 úr 2 og 1 bolta náð

Helgi varði 36 skot þar af 2 víti (64%)
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -


Áfram Selfoss


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta