Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

5.5.2008 | Handboltaakademía

Stórsigur í lokaleik vetrarins

Það var ljóst að mikil keppni var á milli "eldra" og "yngra" liðsins um það hvort liðið myndi ná betri árangri á móti Þrótti á sínum 30 mín. Eldri byrjuðu fyrstu 15 mín. og fór leikurinn frekar rólega af stað. ldri spiluðu flata 6-0 vörn en eldra liðið var skipað þannig: Halldór í marki, Ívar, Kalendauskas, Arnar, Mikalonis, Hörður og Michal.
Yngra liðið spilaði framliggjandi 3-2-1 vörn og keyrði hraðan mikið upp og uppskáru fyrir vikið mikið af hraðaupphlaupum. Birkir var í marki og aðrir leikmenn yngra liðsins voru: Ársæll, Steinar Logi, Kúldi, Sjóli, Guðni og Gústi.

Eftir 15 mín. var staðan 8 - 5 fyrir Selfoss og þá kom yngra liðið inná og staðar í hálfleik var 19 - 11. Yngra liðið hafði því forystu í hálfleik 5 - 3. Eldri kusu síðan að láta yngra liðið byrja seinni hálfleik því að sá kafli hefur oft verið Selfossi erfiður í vetur. Yngra liðið blés á slíkar hrakspár og þegar þeir luku keppni á 44 mín. þá var staðan orðin 28 - 12. Yngra liðið hafði unnið seinna korterið sitt 9 - 1. Eldri áttu nú mikið verk fyrir höndum og reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna metin en náðu ekki yngra liðinu því að leikurinn endaði 41 - 21 og eldri því unnið seinni hlutan sinn með 5 mörkum.

Lokastaðan á milli liðanna var því 13 - 8 fyrir yngra liðið sem vann því 5 marka sigur á eldra liðinu. Allt liðið fagnaði sigrinum en yngra liðið fagnaði tvöfalt.

Eldra liðið:
Vann sinn leik 22 - 14
Hörður 7 mörk
Mikalonis 6 mörk
Michal 4 mörk
Ívar 3 mörk
Kalendauskas 2 mörk
Addi átti fjölmargar stoðsendingar og stjórnaði sókninni af ákveðni og aga
Halldór varði 7 skot

Yngra liðið:
Vann sinn leik 20 - 7
Sjóli 5 mörk
Gústi 5 mörk
Guðni 4 mörk
Ársæll 4 mörk
Steinar 2 mörk
Birkir varði 10 skot þar af 1 víti


Heimasíðan spurði Sebastian út í þetta sérkennilega fyrirkommulag ásamt fleiri atriðum varðandi veturinn.

Hvað með þetta fyrirkomulag ?
Það er oft erfitt að mótivera leikmenn í svona leiki í lokin sem geta ekki breytt niðurstöðu liðsins í töflunni og því ákvað ég að skapa keppni innan liðsins til þess að fá hámarksframmistöðu frá leikmönnum. Það tókst algjörlega því að menn voru að spila af miklu kappi allann leikinn sem skilaði sér í góðum sigri. Ég ætti kannski að gera þetta miklu oftar.


Leikmenn og þjálfari þakka Selfyssingum fyrir stuðninginn og veturinn auk þess sem okkur hlakkar mikið til þess að sjá ykkur aftur í haust.

Áfram Selfoss




Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta