Auðvitað hvetjum við ykkur líka til þess að fara á hina leikina sem eru á laugardag kl. 19:00 og á sunnudag kl. 16:00. Þetta eru leikir í forkeppni EM og keppt er um sæti í lokakeppninni sem fer fram síðar í sumar.
Þetta lið á góða möguleika á því að tryggja sér þetta sæti en við skulum mæta og styðja þá til þess að gera það skothelt. Hver veit nema Selfoss eignist fleiri evrópumeistara í handbolta en Ívar Grétarsson hampaði þeim titli með U-84 liðinu á sínum tíma.
Leikmennirnir sem við eigum í hopnum eru þeir:
Ragnar Jóhannsson
Guðmundur Árni Ólafsson
Bjarki Már Elísson
Einar Héðinsson
Áfram Selfoss og áfram Ísland.
