U-18 ára karlalandslið Íslands sigraði í dag Finna 38-24 í undankeppni EM U-18 ára liða og tryggði sér með því sæti á úrslitakeppni EM U-18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst.
Markahæstir hjá Íslandi voru Aron Pálmarsson með 8 mörk og Sigurður Ágústsson og Ragnar Jóhannsson með 6 mörk hvor. Ragnar átti mjög góðan leik í vörn og sókn. Guðmundur Árni gerði 3 mörk
Arnór Stefánsson, markvörður liðsins, fór líka á kostum í leiknum og varði hvert skotið á fætur öðru.
Fyrr í dag mættust Lettar og Tyrkir og sigruðu Lettar þann leik 35-28.
Á morgun mætir Ísland Tyrklandi kl 16 í Austurbergi. Kl. 14 mætast Finnar og Lettar í úrslitaleik um hvort liðið fylgir Íslandi í úrslitakeppnina í Tékklandi.
