Ísland sigraði Tyrkland 42-27 í síðasta leiknum í undankeppni EM U-18 ára liða karla, en undankeppnin fór fram í Austurbergi nú um helgina. Staðan í hálfleik var 17-11 Íslandi í vil
Fyrir leikinn var ljóst að Ísland kæmist áframá úrslitakeppni EM 18 ára liða sem fer fram í Tékklandi í ágúst, enda sigruðu strákarnir Letta 43-31 á föstudag og Finna 38-24 í gær, laugardag.
Markahæstir Íslands í dag:
Guðmundur Árni Ólafsson 8,
Ragnar Jóhannsson 6,
Stefán Sigurmannsson 5,
Oddur Grétarsson 5 og
Bjarki Már Elíasson 5.
Fyrr í dag fór fram leikur á milli Finnlands og Lettlands, og sigruðu Finnar þann leik 36-32 eftir að hafa leitt í hálfleik 21-14. Með sigrinum tryggðu Finnar sér einnig farseðil á EM.
Lokastaðan í mótinu:
1. Ísland 6 stig
2. Finnland 4 stig
3. Lettland 2 stig
4. Tyrkland 0 stig
