Undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í handknattleik skipað leikmönnum 18 ára og yngri lauk um helgina. 8.riðill var leikinn í Reykjavík og átti Selfoss fjóra fulltrúa þá Ragnar Jóhannsson, Guðmund Árna Ólafsson, Bjarka Má Elísson og Einar Héðinsson.
Íslenska liðið er undir stjórn Einars Guðmundssonar og hafði talsverða yfirburði í þessum riðli og unnu alla sína leiki með 12-15 marka mun. Liðið hefur þar með tryggt sér sæti í lokakeppninni um Evrópumeistaratitilinn sem haldin verður í Brno í Tékklandi dagana 8.-17 ágúst n.k. Ragnar og Guðmundur Árni voru í byrjunarliði íslenska liðsins í öllum leikjunum og Guðmundur var einnig fyrirliði í þeim síðasta.
Guðmundur Árni skoraði 24 mörk á mótinu og var markahæstur íslensku leikmannanna, Ragnar skoraði 16 mörk,varð næst markahæstur og var mjög öflugur í vörninni.
Bjarki Már gerði 7 mörk en Einar Héðinsson gat ekki leikið vegna meiðsla í baki.
Nú taka við hjá strákunum stífar lyftingaæfingar með Selfossliðinu, svo hefst undirbúningur fyrir næsta lokakeppni Evrópumótsins í júlí, framundan eru svo keppnisferðir til Frakkalands í haust og til Þýskalands milli jóla og nýárs, þannig að það er í mörg horn að líta hjá þessu ungum afreksmönnum okkar.
Frakkar, Rússar, Þjóðverjar, Norðmenn, Svíar, Danir, Finnar, Króatar, Serbar, Bosníumenn, Spánverjar, Slóvenia, Ungverjaland og Slóvakía tryggðu sér sæti í lokakeppninni ásamt gestgjöfum Tékka og Íslendingum.
