,,SLÚTTIД hjá handknattleiksdeild Umf. Selfoss verður föstudaginn 23. maí í Íþróttahúsi Vallaskóla.
Dagskrá:
Kl. 16:00-16:45 verður haldið Selfossmeistaramótið í ,,MINNIBOLTA” (Soft ball) 7. fl. - 6. fl.
Kl. 16:45-17:15 verðlaunafhending og grill.
Kl. 17:15-18:00 Selfossmeistaramótið í ,,MINNIBOLTA” (Soft ball) 5. fl. - 4. fl.
Á dagskránni eru leikir, skemmtiatriði, verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla. Mikilvægt að allir iðkendur mæti í búningum vegna myndatöku, foreldrar og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta. Það má taka með sér gesti.
Unglingaráð handknattleiksdeildar Umf. Selfoss
