Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

2.10.2008 | Nýjustu fréttir

Fleiri fyrirmyndardeildir innan Umf. Selfoss

Hjá Umf. Sefloss er í gangi vinna sem miðar að því að fleiri deildir innan félagsins hljóti útnefningu sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Handknattleiksdeild er komin langt á leið með vinnu við sína handbók og knattspyrnudeild og frjálsíþróttadeild hafa ákveðið að fara í sína vinnu. Fimleikadeild félagsins fékk fyrstu útnefninguna 2007, sem jafnframt var fyrsta útnefningin á Suðurlandi. Sunddeild Umf. Selfoss fékk síðan útnefningu á aðalfundi félagsins í vor.

Með því að gerast fyrirmyndardeild fá deildirnar gæðaviðurkenningu frá ÍSÍ. Það ætti að treysta enn frekar undirstöður deildanna og gera þeim auðveldara að afla sér stuðnings frá sveitarfélaginu, stuðningsaðilum og öðrum aðilum. Margir vilja frekar leggja nafn sitt við fyrirmyndarfélög m.a. vegna þess að gæðaviðurkenningin gefur til kynna að allur rekstur sé tekinn fastari tökum. Með góðu skipulagi verður reksturinn líka markvissari og í raun auðveldari. Einnig er minna mál þegar nýir einstaklingar koma inn í stjórnir og ráð. Handbókin hjálpar þá til.

Til að öðlast gæðaviðurkenningu ÍSÍ þurfa félög eða deildir að uppfylla nokkur skilyrði. Má í því sambandi nefna skipulag, fjármálastjórn, þjálfararmenntun, umgjörð þjálfunar og keppni, fræðslu- og forvarnastarf, jafnréttismál, foreldrastarf, umhverfimál og félagsmál.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta