Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

6.10.2008 | Handbolti

23 marka sigur á Ţrótti

Selfoss vann á laugardaginn ótrúlegan sigur á Þrótti á útivelli í 1. deild karla er liðið vann 23 marka sigur, 14-37. Það var aldrei spurning hvort liðið mundi sigra þennan leik.  Selfoss hreinlega valtaði yfir Þróttara.  Selfoss leiddi með 13 mörkum í hálfleik og lokatölur urðu eins og áður sagði 14-37, eða 23 marka munur sem verður að teljast fullmikið í deildarkeppni í handbolta.

Það er greinilegt að Þróttarar þurfa að taka vel til í sínum herbúðum ef liðið ætlar að standa í liðum í þessari deild.

Markaskorarar Þróttar voru:Helgi 5, Einar Sveinsson 4, Jón G. Viggósson 2, Agnar H. Andrésson 1, Friðgeir Jónasson 1 og Óskar Gunnarsson 1.

Markaskorarar Selfoss voru: Bjarki Elísson 6, Guðmundur Ólafsson 6, Atli Kristinsson 5, Michal Dostalik 5, Ragnar Jóhannson 5, Hörður Bjarnarson 3, Sveinbjörn Jóhannsson 3, Eyþór Lárusson 2, Guðni Ingvarsson 1 og Helgi Héðinsson 1.

Áhorfendur voru 75.

Dómarar voru þeir Jón Karl Björnsson og Ólafur Haraldsson. 

Þess má geta að þeir Bjarki Már Elíson og Ragnar Jóhannsson voru valdir í lið umferðarinnar af handbolti.is.

Úrvalslið 3. umferðar 1. deildar karla að mati www.handbolti.is er eftirfarandi:

Markvörður:  Oliver Kiss, Afturelding.
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, Selfoss.
Vinstri skytta:  Einar Örn Guðmundsson, Afturelding.
Miðja:  Örn Ingi Bjarkason, Afturelding.
Hægri skytta: Ragnar Jóhannsson, Selfoss.  
Hægra horn:  Finnur Ingi Stefánsson, Grótta.
Lína:  Máni Gestsson, ÍR.
Maður umferðarinnar:  Örn Ingi Bjarkason, Afturelding.
Þjálfari:  Karl Erlingsson, Afturelding.
Lið umferðarinnar:  Afturelding.
Áhorfendur umferðarinnar:  Afturelding.
Besta umgjörð umferðarinnar:  Grótta.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta