Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.10.2008 | Handbolti

Selfoss komst áfram í 16-liđa úrslit í bikarnum

Selfoss lék við Hauka 2 í 32-liða úrslitum Eimskips bikarsins í gærkvöldi. Haukar 2 var skipað gömlum Haukakempum sem margir hverjir hafa nýlega lagt skóna á hilluna. Leikurinn fór mjög rólega af stað og voru gömlu hetjurnar úr Haukum með forystu 4-1 eftir 5 mínútur. Þegar 10 mínútur voru liðnar var staðan hins vegar orðin 5-5. Eftir það jókst munurinn hægt og rólega. Staðan í hálfleik var 13-20 og í byrjun seinni hálfleiks 13-25 fyrir okkar mönnum. Þá kom kafli þar sem Selfoss var einum leikmanni færri í 16 mínútur þannig að leikurinn datt í jafnvægi og hélst þessi munur því til loka. Lokatölur urðu 31-43 fyrir Selfoss. Liðið er nú komið í 16 liða úrslit Bikarkeppni HSÍ.

Markaskorarar Selfoss: Hörður Bjarnar 8, Ragnar 7, Guðmundur 6, Bjarki 6, Atli 5, Michal 4, Eyþór 2, Guðni 2, Mikalonis 2 og Óskar Kúld 1
Sebastian varði 10 skot í fyrri hálfleik og Birkir 13/1 í þeim seinni.

Selfoss B lék við HK 2 á sunnudagskvöld og varð að sætta sig við 25-26 tap. Liðið er því úr leik í Eimskips bikarnum.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta