Þessu má að miklu þakka árangur landsliðsins, en líka hinu frábæra unglingastarfi deildarinnar sem var verðlaunað á lokahófi Handknattleikssambandsins fyrir ,,besta yngriflokkastarf Íslands” s.l. vor. Í vetur mun handknattleiksdeildin senda um 30 lið til keppni á íslandsmótinu, sem þýðir að umfang deildarinnar hefur aldrei verið meira. Hjá deildinni starfa 12 þjálfarar ásamt um 50 manna hópi í stjórn, unglingaráði og foreldraráðum. Meðfylgjandi mynd var tekin af strákunum í 6.flokki drengja á dögunum, en þeir hefja leik á íslandsmótinu helgina 18.-19. október
