Afturelding tapaði fyrsta leik sínum á þessu keppnistímabili þegar liðið sótti Selfoss heim í gærkvöldi í 1. deild karla í handknattleik, lokatölur urðu 30:27. Mosfellingar voru marki yfir í hálfleik, 14:13.
Um 500 áhorfendur voru á leiknum og rífandi stemning.
Afturelding hafði forystu allan fyrri hálfleik og mest munaði fjórum mörkum á liðunum, 11:7. Leikmenn Aftureldingar héldu áfram að hafa frumkvæðið í leiknum fram eftir síðari hálfleik. „Mínir menn gáfust hins vegar aldrei upp og þeim tókst að jafna leikinn í 22:22 upp úr miðjum hálfleiknum og komast í fyrsta sinn yfir, 24:23," sagði Sebastían þjálfari sem var afar ánægður með sitt unga lið í þessum toppslag 1. deildar. „Við lentum í að vera tveimur leikmönnum færri þegar um tíu mínútur voru eftir en náðum að halda vel aftur af leikmönnum Aftureldingar á þeim tíma sem var afar mikilvægt. Síðan voru við sterkari á lokakaflanum," sagði Sebastían sem hefur á undanförnum þremur árum verið að byggja upp ungt og efnilegt lið á Selfossi.
Birkir Bragason átti stórleik í marki Selfoss og varði 22 skot en fékk á sig 23 mörk. Hann var því með um 50% markvörslu.
Örn Ingi Bjarkason og Hilmar Stefánsson voru bestir Mosfellinga og þá var Ásgeir Jónsson atkvæðamikill á línunni í fyrri hálfleik. Oliver Kiss átti ágætan leik í marki Aftureldingar.
Eftir leikinn á Selfossi eru Selfoss, ÍR, Grótta og Afturelding jöfn að stigum í efsta sæti 1. deildar með 6 stig.
Af: www.mbl.is
