Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

13.10.2008 | Handboltaakademía

Tap í fyrsta leik 2. flokks

ÍR hélt út í seinni hálfleik þrátt fyrir það að Selfossliðið væri alltaf við það að ná þeim með því að jafna leikinn. Í stað þess að klára verkefnið þá virtist Selfossliðið alltaf slaka á þegar þeir jöfnuðu og misstu ÍR 3-4 mörk framúr sér aftur. Svona gekk allur seinni hálfleikurinn þar til að leiknum lauk með verðskulduðum sigri ÍR.

Selfossliðið spilaði frekar illa í heildina í þessum leik sem sést best á því að liðið var með 15 tapaða bolta í leiknum sem er allt of mikið. Inn á milli glitti í raunverulega getu liðsins en aðeins í litlum skömmtum sem dugðu bara engan veginn á móti baráttuglöðu ÍR liði. 

"Leikurinn byrjaði hræðilega hjá okkur en það er ekki ástæðan fyrir tapinu. Við komumst yfir í byrjun seinni hálfleiks og erum þá búnir að vera með leikinn undir fullri stjórn í 25 mín. enda þeir ekki með nein svör við okkar leik á þeim tíma. Í staðinn fyrir að klára verkefnið og reiða þeim banahöggið þá slökuðum við á einbeitingunni og gerum mikið af mistökum á þeim tímapunkti sem hleypir ÍR aftur inn í leikinn. Við hættum að spila okkar leik í sókn og erum hver að spila fyrir sig. Það sem var verra er að við hættum að hlaupa til baka þannig að ÍR fær auðveld mörk. Þetta er því eitthvað fyrir leikmenn til að hugsa um og læra af. Eigum við ekki að segja að fall sé fararheill."  sagði Sebastian þjálfari liðsins að leik loknum.


Helsta tölfræði Selfoss:
Guðmundur 8/2 mörk úr 11/2 skotum og 3 stolnir boltar
Einar 4 mörk úr 5 skotum, 1 fengið víti og 9 brotin fríköst
Ragnar 3 mörk úr 10 skotum
Helgi 3 mörk úr 7 skotum, 3 stoðs. og 5 brotin fríköst
Bjarki 2 mörk úr 2 skotum
Ársæll 2 mörk úr 4 skotum
Eyþór 2 mörk úr 5 skotum
Sjóli 2 mörk úr 5 skotum
Halli 2 mörk úr 5 skotum, 3 stoðs.
Kúldi 1 fegngið víti og 10 brotin fríköst
Sveinbjörn 3 brotin fríköst

Ástgeir varði 5/1 skot (25%)
Birkir varði 18/1 skot (53%)


Markaskorarar ÍR:
Þorgrímur Ólafsson 8
Jónatan Vignisson 6
Andri Friðriksson  5
Arne Wemhier 3
Sigurjón Björnsson 3
Ari Oddsson 2
Gunnar Arason 1
Ottó Aðalsteinsson 1
Brynjar Karlsson 1
Sindri Björnsson 1

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta