Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

17.10.2008 | Nýjustu fréttir

Akstur milli skóla vegna íţróttaćfinga

Fjölskyldumiðstöð Árborgar hefur ákveðið að bjóða börnum, sem þurfa að komast milli Sundhallar Selfoss/Vallaskóla og Sunnulækjarskóla vegna íþróttaæfinga eða annarra tómstunda, að nýta sér laus sæti í skólarútum sem eru á ferðum strax eftir hádegi á milli Sunnulækjarskóla, Sundhallar Selfoss og Vallaskóla. Rúturnar eru á vegum Sunnulækjarskóla. Þetta fyrirkomulag á við um þau börn sem þurfa að komast á millli vegna íþrótta- eða tómstundaiðkunar. Börnin þurfa sjálf að passa upp á að mæta á réttum tíma í rúturnar. Ekkert gjald er tekið fyrir þjónustuna.
Framangreint fyrirkomulag gildir á meðan skóli er starfræktur skólaárið 2008-2009 eða þangað til annað verður ákveðið. Allar breytingar verða auglýstar sérstaklega á heimasíðu Árborgar.

Eftirfarandi ferðir standa tilboða:

Mánudaga  13:05 frá Sundhöll Sefloss að Sunnulækjarskóla 
  13:20 frá Sunnulækjarskóla að Sundhöll Selfoss
  13:45 frá Sundhöll Selfoss að Sunnulækjarskóla 
Þriðjudaga 13:10 frá Sundhöll Selfoss að Sunnulækjaskóla 
Miðvikudaga     12:40    frá Sundhöll Selfoss að Sunnulækjarskóla 
  13:00 frá Sunnulækjarskóla að Vallaskóla 
Fimmtudaga 12:40 frá Sundhöll Selfoss að Sunnulækjarskóla 
  13:05 frá Sunnulækjarskóla að Sundhöll Selfoss 
  13:30 frá Sundhöll Selfoss að Sunnulækjarskóla 

 

 

 

 

 

 

Er það von sveitarfélagsins að þessar ferðir nýtist sem best og auðveldi yngstu iðkendunum að sækja skipulagða íþrótta- eða tómstundastarfsemi í Árborg.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta