Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.10.2008 | Handbolti

6. flokkur vann ţrefalt !

Selfoss-strákarnir 6. flokki unnu þrefaldan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem fór fram um helgina. Öll lið landsins í þessum aldursflokki vorum saman komin á fyrsta stórmótinu af fimm, þar sem um 700 keppendur kepptu í 65 liðum. Keppt er í flokki A, B og C liða og sigraði Selfoss í öllum flokkum. Það er mjög sjaldgæft að sama félag vinni í öllum flokkum og er þetta hreint út sagt frábær árangur hjá strákunum. Alls unnust 23 af þeim 24 sem Selfoss spilaði.Strákarnir í A-liðinu unnu Þór, Val, Aftureldingu og HK á laugardeginum, síðan KR og Hauka á sunnudeginum og ÍBV í hreinum úrslitaleik 12-4. B-liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári og þeir unnu Þrótt, Þór og HK-Lind á laugardeginum, síðan HK-Digranes, Stjörnuna og Val í úrslitunum. Í flokki C-liða var Selfoss með tvö lið, C1 vann alla sína leiki frekar stórt í undankeppninni og síðan  ÍBV í dramatískum úrslitaleik. Í liði C2 voru margir að keppa í handbolta í fyrsta skipti, þeir unnu örugga sigra á Fram, HK-Digranes og HK-Lind en töpuðu naumlega fyrir Gróttu og komust þar af leiðandi ekki í úrslit en stóðu sig engu að síður frábærlega.

,, Ég er mjög ánægður með mína stráka eftir þessa helgi, þeir voru til fyrirmyndar innan vallar sem utan, við vorum að leika mjög hraðan handbolta og spila öflugan varnaleik hjá öllum liðum. Þetta er framtíðar hópur sem vel verður haldið utan um. “ sagði Einar Guðmundsson þjálfari strákana.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta