Eftir að Selfoss liðið jafnar þá er leikurinn í jafnvægi nánast til leiksloka. Vendipunkturinn kom upp í stöðunni 24 - 25 fyrir Hauka og Selfoss með boltann þegar tímavörður Hauka stöðvaði leikinn og lét dómara leiksins vita að Selfoss hefði skipt vitlaust inná. Dómararnir áttu engan annan kost í stöðunni en að dæma Haukum boltann og víkja leikmannninum útaf sem skipti vitlaust. Þegar liðin voru svo orðinn fullmönnuð aftur þá var staðan orðin erfið fyrir okkar menn enda búnir að missa Hauka í 27 - 24.
Það eina sem er athyglisvert við þessa atburðarás er að skiptingin var fullkomlega LÖGLEG og tímavörður Hauka hafði einfaldlega rangt fyrir sér.
Nánast allir leikmenn liðsins komu við sögu í leiknum þannig að breiddin er til staðar. Liðið virðist hins vegar engan veginn ná saman inná vellinum. Í liðið vantaði þá Einar og Helga Héðinssyni en báðir eru meiddir. Þá meiddust Halldór Stefán og Birkir í leiknum en báðir misstigu þeir sig. Vonandi að þeir jafni sig sem fyrst.
Heimasíðan spurði þjálfara liðsins hvort hann hefði ekki áhyggjur af því hvernig liðið byrjaði veturinn:
"Ástandið er alvarlegt. 2. flokkur hefur enga æfingatíma í húsinu og æfir því aldrei saman sem lið. Það er með ólíkindum að taka þátt í Íslandsmóti af einhverjum metnaði og á sama tíma er ekki pláss í húsinu fyrir eina einustu æfingu fyrir flokkinn. Hins vegar er það ekki eitt og sér skýring því þessi strákar hafa allir æft og spilað saman áður, þó mismikið, en vissulega hjálpar þetta ekkert. Ég get ekki fórnað M.fl. æfingum í það að spila saman 2. flokk. Þetta er eitthvað sem við getum ekki breytt. Það sem við getum hins vegar lagað er fyrst og fremst hugarfar leikmanna sjálfra. Á meðan sumir leikmenn liðsins virðast einblína bara á M.fl. þá eru aðrir í liðinu í lítilli leikæfingu enda ekki að fá mikið á M.fl. æfingum. Það er vonandi að B-liðs leikirnir í M.fl. leysi úr því. Aðal áhyggjuefni mitt er að fá liðið til að spila af eðlilegri getu í meira en aðeins 20-25 mín. í leik. Á móti ÍR byrjum við á 3 - 11 kafla á 15 mín., jöfnum og komumst yfir á 20 mín. en slökum þá aftur á sem gerir út um leikinn. Í gær förum við úr 4 - 8 í 18 - 11 á 25 mín. sem er 14 - 3 kafli fyrir Hauka, jöfnum aftur á 10 mín. en gefum svo aftur eftir í lokin og töpum. Þetta segir mér bara það að leikmenn liðsins eru ekki að koma "rétt" undirbúnir hugarfarslega í þessa leiki í 2 fl."
Hver er þín skoðun á þessu atviki með skiptinguna, skipti þetta atriði öllu máli:
"Ég sat á bekknum beint fyrir framan línuna þar sem skipt er inná, einmitt til þess að hafa auga með skiptingunum. Skiptingin var aldrei röng. Leikmennirnir hefðu þurft að stíga yfir mig til þess að það væri hægt enda bekkirnir bara 20 cm. frá hliðarlínunni. Strákgreyinu á ritaraborðinu hefur bara missýnst. Já og nei, ég lít þannig á það að við hefðum ekkert átt að vera í þessari stöðu ef við hefðum spilað okkar eðlilega leik. Þetta atvik er ekki það sem ég hef mestar áhyggjur af í dag."
Helsta tölfræði Selfoss:
Guðmundur Árni 7 mörk úr 13 skotum
Hörður 5 mörk úr 10 skotum, 3 stoðsendingar
Sveinbjörn 4 mörk úr 6 skotum
Eyþór 3 mörk úr 9 skotum, 1 fengið víti
Óskar 2 mörk úr 2 skotum, 2 fengin víti
Halldór 2 mörk úr 2 skotum, 2 stoðsendingar
Ragnar 1 mark úr 6 skotum, 2 stoðsendingar
Hermann 1 mark úr 1 skoti
Ársæll 0 mörk úr 1 skoti, 1 fengið víti
Bjarki 0 mörk úr 2 skotum, 1 stoðsending
Birkir varði 21 skot (46%)
Ástgeir varði 1 skot (25%)
Heimasíðan fékk ekki eintak af skýrslu leiksins þannig að ekki er hægt að telja upp markaskorara Hauka.
Áfram Selfoss
