Strákarnir í 91-liði Selfoss unnu Hauka í sínum fyrsta leik á tímabilinu. Leikurinn fór fram á Ásvöllum s.l. laugardag. Lokatölur voru 26-30 Selfossi í vil eftir að okkar menn höfðu leitt í hálfleik 12-14.
Selfoss byrjaði leikinn betur og komust yfir 5-3 en þá fór allt í baklás og Haukarnir komust yfir 9-7 og 12-10. Á þessum kafla gekk sóknin vel þannig að góð færi sköpuðust en stangir og slár voru eitthvað að flækjast fyrir mönnum. Okkar strákar komu þó til baka og komust yfir 14-12 í hálfleik. Varnarleikur liðsins var oft og tíðum götóttur og fengu Haukanir ódýr mörk.
Seinni hálfleikur var jafn allan tímann og gekk strákunum engan veginn að skilja við heimamenn. Alltaf komu Haukamenn til baka. Það verður þó að segjast eins og er að erfitt er að skilja lið eftir þegar maður er einum til tveimur færri nánast alltaf. Þegar um átta mínútur voru til leiksloka setti Arnar þjálfari Örn í hornið og nýttist hans líkamlegi styrkur þar vel og vóg þessi skipting þungt á lokamínútunum. Selfyssingar náðu í lok leiksins að rífa sig frá baráttuglöðum Haukum og höfðu að lokum sigur 30-26.
Selfyssingar geta leikið mun betur en þeir gerðu í þessum leik. Afar erfitt er að stinga lið eins Hauka af sem spilar framliggjandi og fær að komast með ýmislegt þar og leika þeir einnig langar og skynsamar sóknir. Okkar menn náðu ekki þessum hraða leik sem þeir geta leikið svo vel.
Tölfræði Selfoss:
Matthías Örn Halldórsson 6 mörk úr 11 skotum, 3 stoðsendingar og 14 fríköst
Örn Þrastarson 6 mörk úr 7 skotum
Árni Steinn Steinþórsson 6 mörk úr 10 skotum og 5 stoðsendingar
Aðalsteinn Halldórsson 4 mörk úr 5 skotum
Andri Már Sveinsson 3 mörk úr 5 skotum
Anton Traustason 2 mörk úr 3 skotum
Sigurþór Þórsson 1 mark úr 1 skoti og 8 brotin fríköst
Andri Hrafn Hallsson 1 mark úr tveimur skotum
Þór Davíðsson 1 mark úr 1 skoti og 7 brotin fríköst
Trausti Eiríksson 0 mörk úr 2 skotum
Sverrir Andrésson varði 20 skot
