4. flokkur kvenna sigraði fyrsta deildarleikinn á tímabilinu gegn HK 19-12 í Vallaskóla. Jafnt var á öllum tölum framan af leiknum en Selfoss stelpurnar sigu fram úr í lok fyrri hálfleiks. Stóðu leikar 9-6 þegar gengið var til leikhlés. Eftirleikurinn var Selfoss stelpum auðveldur og kláruðu þær leikinn eins og áður sagði 19-12.
Bestar í liði Selfoss voru Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Rós Antonsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir og Esther Hallsdóttir. Þrátt fyrir 7 marka sigur er ljóst að stelpurnar eiga mikið inni en 2 byrjunarliðsmenn vantaði eða þær Hrafnhildi Hönnu og Díönu Sigmarsdóttur. Sóknarleikurinn var frekar þungur og hægur á köflum en varnarleikurinn var stöðugur. Næsti leikur er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.
Tölfræði
Kristrún Steinþórsdóttir 12 mörk úr 20 skotum og 6 fríköst.
Thelma Björk Einarsdóttir 4 mörk úr 9 skotum og 6 fríköst.
Jenný Jóhannsdóttir 1 mark úr 2 skotum og 2 fríköst.
Alexandra Bía Sumarliðadóttir 1 mark úr 6 skotum og 1 stoðsending.
Guðrún Bína Rúnarsdóttir 1 mark úr 1 skoti.
Esther Hallsdóttir 0 mörk úr 1 skoti og 6 brotin fríköst.
Birta Rós Antonsdóttir 23 skot varinn og 12 fengin á sig = 52% þar af 1 víti.
