Leikurinn var jafn allan tímann þar sem liðin skiptust á að eiga góða kafla, en annað liðið náði aldrei að slíta sig frá hinu. Stjarnan hafði þó frumkvæðið framan af seinni hálfleik og mestur varð munurinn 4 mörk þegar um 10 mín. voru eftir. Í stað þess að gefast upp þá sýndu stelpurnar mikla baráttu og spiluðu sig inn í leikinn aftur. Síðustu mínúturnar voru gríðarlega spennandi sem endaði á því að Selfoss jafnaði úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Þetta verða að teljast góð úrslit fyrir liðið þar sem Stjarnan er með frábært kvennastarf og hefur um árabil verið með sterkustu lið landsins í yngri flokkunum.
Allar stelpurnar komu við sögu í leiknum og skilaði hver og ein framlagi til leiksins þannig að það má segja að liðsheildin hafi skilað stiginu. Vörnin var góð allan leikinn og skipti þá engu máli hver spilaði hvar. Allar voru þær að berjast og gaman að sjá hversu mikinn metnað þær leggja í að spila vörn. Á bak við vörnina varði Áslaug Ýr Bragadóttir alls 18 skot og mörg þeirra á lokakaflanum sem var mjög mikilvægt. Sóknarleikurinn var frekar stirrður sem er eðlilegt því að liðið er ekki enn byrjað að æfa leikkerfi. Eflaust mun sóknarleikurinn lagast við það að þær fái nokkur leikkerfi inn í spilið.
Tölfræði Selfoss í leiknum:
Hildur 10 mörk - úr 13 skotum, 1 stoðs., 1 frákast og 1 brotið fríkast
Thelma 8 mörk - úr 17 skotum, 2 stoðs., 1 frákast og 7 brotin fríköst
Dagný 6 mörk - úr 9 skotum, 1 stolinn bolti, 2 fengin víti, 2 fráköst og 3 brotin fríköst
Íris 1 mark - úr 2 skotum, 2 varin skot og 3 brotin fríköst
Ragna 1 mark - úr 2 skotum, 2 fengin víti og 4 brotin fríköst
Guðbjörg 1 mark - úr 3 skotum, 1 fengið víti, 1 varinn bolti og 2 brotin fríköst
Margrét 0 mörk - úr 1 skoti, 1 stolin bolti og 1 frákast
Ragnhildur 3 brotin fríköst
Jóhanna 3 brotin fríköst
Bylgja 1 fengið víti. Bylgja meiddist á ökkla stuttu eftir að hún kom inná og spilaði ekki eftir það.
Sara var veik og spilaði ekki.
Áslaug varði 18 skot (40%) og var með 1 stoðs.
Góð byrjun hjá stelpunum. <
Næsti leikur hjá þeim er einnig heimaleikur á móti Val laugardaginn 8. nóv. kl. 18:00. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og styðja þær.
Áfram Selfoss
