4. flokkur kvenna fór til eyja að spila við eyjastelpurnar í ÍBV. Flogið var frá Bakka í 9 sæta rellu öllum stelpunum til mikillar hamingju og voru ófá öskrin sem að grey flugmaðurinn þurfti að upplifa á meðan hann var að sinna vinnu sinni. Þegar komið var til eyja var okkur skutlað uppá gistiheimili. Stelpurnar gistu eins og sardínur í dós á meðan Halldór og Hermann þjálfarar fengu undir sig tveggja hæða hús alveg einir, enda algjörir kóngar þar á ferð. Við hentum frá okkur dótinu og komum okkur upp í íþróttahús enda stutt í leik ÍBV-Selfoss.
Leikurinn byrjaði mjög jafnt og skiptust liðin á að skora í byrjun fyrri hálfleiks. Þegar 10 mínútur voru eftir af honum skelltu Selfoss-stelpurnar í lás í vörninni og Birta varði nánast hvern einasta bolta sem kom á markið og staðan í hálfleik því 10-5 fyrir okkar stelpum.
Stelpurnar komu einbeittar inn í seinni hálfleikinn og héldu forskotinu á eyjastelpurnar framan af. Þá lokaðist vörnin hjá ÍBV stelpum og okkar stelpur áttu í stökustu vandræðum með að koma boltanum í netið. ÍBV minnkaði forskotið hægt og rólega og þegar 2 mínútur voru eftir voru þær komnar yfir 15-14 og við í vörn. Hrafnhildur Hanna fiskar þá boltan frábærlega eins og svo oft áður í þessum leik og skorar sjálf úr hraðaupphlaupinu. ÍBV stelpurnar fara í sókn þegar 1 mínúta var eftir af leiktímanum og spennan í hámarki. ÍBV missti boltan og við geystumst í sókn. Hrafnhildur Hanna slapp í gegn þegar um 5 sekúndur voru eftir en skot hennar hafnaði í stönginni, Kristrún náði frákastinu en það var brotið á henni og leiktíminn leið út. 15-15 jafntefli því staðreynd.
Best í liði Selfoss var Hrafnhildur Hanna. Einnig átti Guðrún Bína frábæra innkomu. en aðrar hafa sýnt að þær geta gert betur. Selfoss-stelpurnar eru taplausar eftir tvo leiki með 3 stig. Þetta verður því án efa spennndi vetur og ljóst að Selfoss-stelpurnar munu gera atlögu að toppsætum.
Mörk Selfoss skoruðu:
Hrafnhildur Hanna, 7 mörk úr 14 skotum, 5 unnur boltar og 1 stoðsending
Kristrún Steinþórsdóttir, 4 mörk úr 15 skotum, 10 fríköst og 2 boltar í hávörn
Díana Sigmarsdóttir, 2 mörk úr 10 skotum og 2 fríköst
Guðrún Bína, 2 mörk úr 3 skotum
Esther Hallsdóttir, 6 brotin fríköst
Birta Rós varði 12 skot og fékk á sig 15 mörk = 44%.
Eftir leikinn horfðu stelpurnar á landsleikinn og síðan skelltu þær sér allar í sund. Eftir sundið var farið að spranga og voru menn sammála því að Halli þjálfari hefði verið langbestur. Næst lá leiðin á Cafe María þar sem að pizzahlaðborð beið eftir því að láta borða sig og var það sko gert. Allir afgangar voru teknir með til að borða í morgunmat daginn eftir. Kvöldinu var síðan eitt á gistiheimilinu.
Ræs var klukkan 7:15 og lagði Herjólfur af stað klukkan 08:15. Ferðin með Herjólfi gekk vel fyrir sig enda sváfu undirritaðir alla leiðinna og höfum ekki hugmynd um hvernig stelpunum leið. Frábær ferð í alla staði, takk fyrir helgina stelpur.
Halli og Hemmi
