Aðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði.
Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins. Ákveðið var að halda sérstakan forvarnadag félagsins í samvinnu við grunnskólana þar sem megin áhersla er lögð á 8.-10. bekk. Þá var rætt um hugsanlegar leiðir til að auka þátttöku barna- og unglinga í starfinu sem og almennings.
Ákveðið var að skipa nefnd með fulltrúum allra deilda þar sem vinna á hugmyndir að sameiginlegum íþrótta- og tómstundaskóla allra deilda sumarið 2009.
Að lokum var tekið fyrir erindi frá ÍSÍ og fjallað um áhrif efnahagsástandsins á íþróttahreyfinguna. Fram kom að stuðningur frá fyrirtækjum hefur dregist saman, en iðkendum hefur ekki fækkað enn sem komið er. Mun félagið fylgjast vel með þróun mála næstu misserin. Ákveðið var að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein.
ÖG
