Í gærkvöld sótti 92 -liðið Þróttara úr Reykjavík heim. Þessi leikur mun sennilega seint gleymast leikmönnum Selfoss þar sem sú íþrótt sem leikin var í gærkvöld á fátt skylt við handbolta. Sigur hafðist í leiknum 22-21 eftir mikinn sirkus og húllumhæ. Í hálfleik leiddu Selfyssingar 13-10.
Fæst orð bera minnstu ábyrgð og verður því ekki farið ítarlega út í dómgæsluna né framkvæmd leiksins en leikmenn Selfoss voru mikið út af í tvær mínútur og Þróttarar fengu vítakast æði oft fyrir það eitt að nálgast mark okkar manna. Ekki er hægt að fullyrða um fjölda tveggja mínútna brottvísana þeirra er Selfoss hlaut í leiknum þar sem engin leikskýrsla var fyllt út.
Erfitt er að taka einhvern leikmann út í liði Selfoss en helst ber þó að nefna Einar Sverrisson sem átti fínan leik sem og Andri Hallsson sem barðist vel. Aðrir leikmenn skulda mikið.
Tölfræði:
Orri Davíðsson 5 mörk úr 9 skotum, 3 stoðsendingar, 6 brotin fríköst
Andri Hrafn Hallsson 5 mörk úr 11 skotum, 3 stoðsendingar og 10 brotin fríköst
Einar Sverrisson 4 mörk úr 5 skotum, 3 stoðsendingar, 6 brotin fríköst
Daníel Freyr Jónsson 2 mörk úr 4 skotum, 7 brotin fríköst
Guðbjörn Tryggvason 2 mörk úr 3 skotum, 6 brotin fríköst
Kamil Jónsson 1 mark úr 1 skoti
Ketill Heiðar Hauksson 1 mark úr 2 skotum
Ingvi Tryggvason 1 mark úr 3 skotum
Helgi Hlynsson átti lélegan leik og varði aðeins 10 skot.
