Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.11.2008 | Nýjustu fréttir

Hvađ er EVRÓVÍSIR?

Hvað er EVRÓVÍSIR?

Langar þig að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi? Langar þig að kynnast nýju fólki í nýju landi?
Ef þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi.  Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.

Evróvísir er í samstarfi við aðrar skrifstofur í Evrópu sem upplýsa um tækifæri ungs fólks.  Viljir þú t.d. vinna á Spáni eitt sumarið þá getur starfsmaður Evróvísis á Íslandi haft samband við starfsmann Evróvísis á Spáni og beðið um upplýsingar og ábendingar um hvernig á að snúa sér í málinu.

Evróvísir veitir upplýsingar um styrki fyrir ungt fólk í Evrópu.  Styrkjaáætlanir eru á sviði formlegrar og óformlegrar menntunar, starfsmenntunar og starfsþjálfunar, sjálfboðavinnu sem og æskulýðsmála. Markhópurinn er ungmenni á aldrinum 13-30 ára og fólk sem vinnur með þessum aldurhópi. Hægt er að sækja um styrki í ýmis verkefni og komast í samstarf við fólk í Evrópu með sömu áhugamál og hugsjónir.

Evróvísir sér einnig um Evrópsku ungmennagáttina.  Þar er hægt að finna upplýsingar um menntun í 31 Evrópulandi eins og t.d. háskólamenntun, starfsmenntun, tungumálanám og óformlega menntun.  Þar er einnig að finna upplýsingar um atvinnumöguleika í Evrópu eins og t.d.í sumarfríum, starfsþjálfun, sjálfboðavinnu og au-pair. Síðan eru þarna upplýsingar um áhugaverðar netsíður og ferðamöguleika í Evrópu.

Tækifærin bíða eftir þér. Skoðaðu http://www.evrovisir.is/ og athugaðu hvað er í boði fyrir þig og félaga þína.

Evróvísir er hluti af ungmennaáætlun Evrópusambandsins:
Evrópa unga fólksins (EUF)
Laugavegi 170, 105 Reykjavík,
Sími: +354 551 9300
Netfang: evrovisir@evrovisir.is

Starfsmaður: Helga Dagný Árnadóttir
helga@euf.is

Evrópa unga fólksins / Youth in Action  http://www.umfs.is/admin/news/www.euf.is
Evróvísir / Eurodesk  http://www.umfs.is/admin/news/www.evrovisir.is
Evrópska ungmennagáttin / European Youth Portal  http://www.umfs.is/admin/news/www.europa.eu/youth


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta