Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.11.2008 | Handboltaakademía

Selfoss´91 vann FH í gćrkvöld

Selfoss ´91 gerði sér lítið fyrir og vann besta lið landsins í þessum aldursflokki. Það verður að teljast gríðarlega góður sigur að vinna jafn gott lið og FH er talið vera. Sigur hafðist með minnsta mun 27-26 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 14-12.

Selfossliðið byrjaði leikinn af krafti og komst í 4-1 og 6-2 en þá var eins og leikmenn hættu að sækja á markið og fóru að draga sig tila baka. FH-ingar gengu á lagið og náðu að jafna 6-6. Selfoss gerði svo næstu tvö mörk og leiddu í hálfleik 14-12, Matthías Halldórsson fór á kostum á þessum kafla og skoraði nokkur mörk með þrumufleygum.

Selfoss leiddu alltaf í síðari hálfleik með 1-3 þremur mörkum en FH var aldrei langt undan. Í stöðunni 24-21 gátu heimamenn náð fjögurra marka forystu en fóru illa að ráði sínu og FH jafnaði á nýjan leik, 25-25. Okkar menn reyndust sterkari á lokakaflanum og gerði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok eftir vel útfært kerfi sem sett var upp í leikhléi er tekið var 20 sekúndum fyrir leikslok. Það mark skoraði Árni Steinn Steinþórsson eftir sendingu Arnar Þrastarsonar. Leikmenn Selfoss fögnuðu gríðarlega í leikslok og mega vel við una. Selfyssingar léku alls ekki vel í þessum leik þrátt fyrir marga góða hluti í leiknum. Þeir léku illa heilt yfir í leiknum sóknarlega en vinna samt besta lið landsins. Hvað getur gerst ef þeir leika vel?

Selfsyssingar sóttu allt of langt frá vörninni, voru oft ekki nægilega áræðnir og hefðu mátt leysa meira inn með kantmenn sína. Hornaspil var nánast ekki neitt sem útskýrist af að menn sóttu á vörnina of langt frá henni.

Þetta var sigur leiðsheildarinnar og samheldni þeirrar er einkennir bæði lið 3.flokks karla í handbolta á Selfossi.

Tölfræði:
Matthías Örn Halldórsson 9 mörk úr 19 skotum, 3 stoðsendingar, 3 varin skot og 17 brotin fríköst
Árni Steinn Steinþórson 5 mörk úr 10 skotum, 6 stoðsendingar og 5 brotin fríköst
Örn Þrastarson 3 mörk úr jafnmörgum skotum, 3 stoðsendingar og 3 brotin fríköst
Andri Hrafn Hallsson 3 mörk úr jafnmörgum tilraunum og 2 brotin fríköst
Andri Már Sveinsson 2 mörk úr 4 skotum og tvö fráköst
Þór Davíðsson 2 mörk og tvær tilraunir og 13 brotin fríköst
Aðalsteinn Halldórsson 2 mörk úr 6 tilraunum, 3 fráköst, 2 stolnir boltar, eitt fiskað víti og 3 brotin fríköst
Anton Freyr Traustason 1 mark og eitt skot
Sigurþór Þórsson 7 brotin fríköst
Trausti Eiríksson 0 mark og eitt skot, 2 stoðsendingar og 2 brotin fríköst

Sverrir Andrésson varði 15 skot og fékk á sig 19

Helgi Hlynsson varði 7 skot og fékk á sig 7


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta