Selfoss vann góðan sigur á Haukum U, 33-21, á heimavelli í 1. deild karla í kvöld. Selfoss hafði mikla yfirburði í þessum leik og leiddi m.a. með átta mörkum í hálfleik, 17-9 og jók síðan muninn í síðari hálfleik og vann að lokum tólf marka sigur eins og áður sagði, 33-21. Stórskyttan Atli Kristinsson og markvörðurinn Birkir Bragason voru bestu menn Selfossar í kvöld. Erfitt er að nefna einhvern leikmanna Hauka U sem skaraði fram úr í kvöld þar sem leikur liðsins var frekar dapur í kvöld.
Markaskorarar Selfoss voru:
Atli Kristinsson 7,
Guðmundur Ólafsson 6,
Michal Dostalik 5,
Hörður Bjarnarson 4,
Ragnar Jóhannsson 3,
Hörður Másson 3,
Halldór Haraldsson 2,
Bjarki Elísson 1,
Helgi Héðinsson 1 og
Ramunar Mikalonis 1.
Markaskorarar Hauka U voru:
Tjörvi Þorgeirsson 5,
Hörður Guðmundsson 4,
Kristján Arnarsson 4,
Styrmir Gunnarsson 3,
Rúnar Svavarsson 2,
Jóhann Jónsson 1,
Orri Sturluson 1 og
Heimir Heimisson 1.
Áhorfendur voru um tæplega 400.
Dómarar voru þeir Ómar Ingi Sverrisson og Magnús Björnsson.
