Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

10.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna lagđi FH

Stelpurnar í 4. flokki eru áfram taplausar eftir að þær sigruðu FH í gær, en FH hafði sigrað alla sína leiki hingað til. Leikurinn byrjaði jafnt en þegar líða tók á hálfleikin fóru Selfoss stelpurnar að síga framúr og staðan í hálfleik 9-4. FH stelpurnar komu mjög grimmar til leiks í síðari hálfleik og minnkuðu forskotið hægt og rólega, 2 mörk var munurinn á tímabili, en nær komust þær ekki og Selfoss stelpurnar unnu leikinn 16-14.

Það er þó nokkuð áhyggjuefni hversu slakur seinni hálfleikurinn vill oft verða hjá stelpunum en þær töpuðu seinni hálfeik 7-10. Sama var uppá teningnum í Vestmannaeyjum en staðan í hálfeik þar var 10-5 Selfoss í vil en leikurinn endaði 15-15. Þetta er eitthvað sem stelpurnar þurfa að hugsa um og laga.
Bestar hjá Selfossi í dag voru þær Kristrún Steinþórs, Hrafnhildur Hanna og Esther Halls.
 
Kristrún Steinþórsdóttir, 7 mörk úr 12 skotum og 10 brotin fríköst.
Hrafnhildur Hanna, 3 mörk úr 7 skotum, 4 stoðsendingar, 8 brotin fríköst og 3 unnir boltar.
Esther Hallsdóttir, 3 mörk úr 3 skotum, 9 brotin fríköst, 1 hávörn og 1 frákast.
Díana Sigmarsdóttir, 1 mark úr 2 skotum og 7 brotin fríköst.
Thelma Björk Einarsdóttir, 1 mark úr 2 skotum og 2 brotin fríköst.
Guðrún Bína Ingólfsdóttir, 1 mark úr 3 skotum og 2 fríköst.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta