Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

13.11.2008 | Handbolti

Hafsteinn styrkir heimaleikinn viđ Gróttu sem fram fer á föstudaginn

Okkar ágæti heiðursfélagi Hafsteinn Þorvaldsson tók sig til og styrkti næsta heimaleik Selfoss í handboltanum með 30.000 kr. framlagi. Framlagið nýtist til að kaupa 40 miða sem verða gefnir og greiða stærstan hluta auglýsingakostnaðar vegna leiksins. Hafsteinn sýnir þarna stórhug sinn í verki og kemur styrkurinn að góðum notum. Hafsteinn hvetur alla, unga sem aldna, að mæta á leikinn við Gróttu sem verður föstudagskvöldið 14. nóv. kl. 19:30 í íþróttahúsi Vallaskóla. Nú standa allir saman og hvetja Selfoss.

Hafsteinn er gamall eldbrattur ungmennfélagi sem hefur aldrei látið deigan síga. Hann tók þátt í endurreisn og uppbyggingu Umf. Selfoss rétt eftir 1960 og var m.a. formaður félagsins í eitt ár. Hann var einnig formaður UMFÍ um árabil og þótti farsæll og góður leiðtogi. Fóru þeir félagar hann og Sigurður Geirdal ófáar ferðir um landið og drifu upp starf starf ungmenna- og íþróttafélaga.

Í dag er Hafsteinn hress og viðræðugóður og sést oft á blússandi göngu eftir Tryggvagötunni með tvo göngustafi í hendi. Einnig er hann fastagestur í Sundhöll Selfoss. Hafsteinn tekur einnig þátt í starfi eldri borgara á Selfossi af lífi og sál, eins og honum einum er lagið.

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss vill þakka Hafsteini fyrir höfðinglegan stuðning.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta