Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

14.11.2008 | Handboltaakademía

Þórir samdi á ný við N-Lübbecke

Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handknattleik, skrifaði í gær undir nýjan samning við þýska handknattleiksliðið N-Lübbecke. Hann gildir fyrir tvö næstu tímabil eða til vorsins 2011.

Þórir leikur nú sitt fjórða tímabil með félaginu og hefur spilað þar lengst allra núverandi leikmanna þess. Þrjú ár í efstu deild en N-Lübbecke féll í vor og er nú með yfirburðastöðu í norðurriðli 2. deildar, hefur unnið 13 fyrstu leikina á tímabilinu, í deild og bikar.

„Fjölskyldunni líður vel hérna, ég er í liði sem er á mikilli siglingu núna og er með þjálfara sem hefur trú á mér, og það var því mjög gott að ganga frá þessum málum. Félagið vill tryggja sér sína helstu leikmenn áfram og vera tilbúið í slaginn í efstu deild á ný næsta vetur ef þetta gengur upp hjá okkur,“ sagði Þórir við Morgunblaðið í gær.

Þórir er 28 ára, örvhentur hornamaður, og lék með Selfossi og Haukum áður en hann gerðist atvinnumaður í Þýskalandi. Þórir var hetja íslenska landsliðsins gegn Norðmönnum á dögunum þegar hann skoraði tvö síðustu mörkin og tryggði því jafntefli í Evrópuleik þjóðanna í Drammen.

Tekið af mbl.is

Það verður því bið enn um sinn á að við fáum að sjáum Þóri í Selfossbúningum að nýju.

 


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta