Í kvöld fer fram einn af stærri leikjum ársins í 1. deild karla á Selfossi þar sem að Selfyssingar taka á móti Gróttu. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fer fram í íþróttahúsinu við Vallaskóla.
Selfyssingar sem sitja í 2. sæti hafa farið vel af stað í 1. deildinni í vetur, eftir 7 leiki hafa þeir unnið 6 og tapað einum.
Selfoss
Síðustu tvær viðureignir Selfoss í deildinni hafa farið svona:
Fjölnir - Selfoss 14-35 (5-16)
Selfoss - Haukar U 33-21 (17-9)
Markahæstu menn Selfyssinga eru :
Guðmundur Árni Ólafsson 45 mörk
Atli Kristinsson 43 mörk
Michal Dostalik 33 mörk
Ragnar Jóhannsson 31 mark
Lykilmenn
Birkir Fannar Bragason
Michal Dostalik
Ramunas Mikalonis
Atli Kristinsson
Grótta
Grótta er í 3. sæti og hafa eins og Selfyssingar farið mjög vel af stað. Þeir eru einungis búnir að tapa einum leik og það gegn Selfossi í 1. umferð. Grótta á einn leik til góða á hin félögin en með sigri eiga þeir séns á að skjótast upp fyrir Selfyssingana.
Síðustu leikir Gróttu í deild hafa farið svona:
Grótta - Þróttur 43-16 (23-6)
Grótta - Afturelding 29-20 (17-9)
Markahæstu menn Gróttu eru :
Finnur Ingi Stefánsson 42 mörk
Zoltán Belányi 27 mörk
Arnar Freyr Theódórsson 26 mörk
Jóhann Gísli Jóhannesson 25 mörk
Lykilmenn
Hlynur Morthens
Zoltán Belányi
Ægir Hrafn Jónsson
Finnur Ingi Stefánsson
Staða efstu liða í deildinni er eftirfarandi:
1.ÍR 7 6 0 1 218:180 38 12
2.Selfoss 7 6 0 1 236:170 66 12
3.Grótta 6 5 0 1 192:141 51 10
4.Haukar U 7 4 0 3 198:181 17 8
Saga síðustu viðureigna
Fös. 19. sep.2008 Grótta - Selfoss 25-29 (11-14)
Fös. 28. mar.2008 Grótta - Selfoss 28-28 (11-12)
Fös. 1.feb.2008 Selfoss - Grótta 32-30 (15-12)
Þri. 20.nóv.2007 Grótta - Selfoss 22-22 (10-8)
Fim. 4.okt.2007 Selfoss - Grótta 28-24 (16-14)
Selfoss 8 stig
Grótta 2 stig
Selfoss - Grótta
Ljóst er að þessi leikur verður án efa einn af þeim stærstu í vetur. Gróttumenn freista þess að sigra Selfyssingana en þeir hafa ekki komist nær því en að gera jafntefli seinnustu 2 ár. Selfyssingarnir hinsvegar hafa unnið 3 af seinnustu 5 viðureignum og alla heimaleikina svo að sagan stendur með Selfyssingunum. Þó má ekki gleyma því að Selfyssingarnir eru ekki ósigrandi á heimavelli eins og ÍR sýndi í byrjun tímabils.
Fyrri leikur þessara liða var þó jafn og spennandi lungan af leiknum og var vel mætt í íþróttaheimilið á Seltjarnarnesi. Búist er við fjölmörgum stuðningsmönnum Gróttu úr bænum og einnig er vanalega fullt hús á leikjum Selfyssinga svo vonandi verður fullt útúr dyrum á morgun.
Í fyrri leik liðana voru þeir Michal Dostalik og Atli Kristinsson markahæstir Selfyssinga hvor með sex mörk en hjá heimamönnum reyndust Zoltán Bragi Belányi og Ægir Hrafn Jónsson markheppnastir en báðir skoruðu fimm mörk.
Það er því ljóst að búist er við hörkuleik á Selfossi í kvöld og hvetur www.handbolti.is alla áhugamenn um handbolta að mæta á Selfossi. Samkvæmt heimildum www.handbolti.is kostar 500 kr. Inn á leikinn og mælt er með því að mæta snemma til að ná góðum sætum.
tekið af www.handbolti.is
