Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.11.2008 | Handbolti

4. flokkur kvenna vann ÍR 21-14

4. flokkur kvenna gerði góða ferð til Reykjavíkur þegar þær mættu ÍR í Austurbergi.
Selfoss stelpurnar byrjuðu leikinn skelfilega ílla og hafa þær sjaldan sést spila svona ílla eins og raun bar vitni. Stelpurnar lentu meðal annars 7-4 undir. Í lok fyrri hálfleiks kom þó smá neisti í liðið og Birta tók nokkra mikilvæga bolta í markinu, því náðu þær að jafna leikinn rétt undir lok hálfleiksins og stóðu leikar 8-8.

Eftir hraustlega hálfleiksræðu og gott spark í rassinn kom allt annað Selfoss lið til leiks í síðari hálfleikinn svo ótrúlegur var munurinn á fyrri og seinni hálfleik. Vörninn skellti gjörsamlega í lás og nokkur hraðaupphlaup litu dagsins ljós þar sem að Birta lokaði markinu einnig. ÍR stelpurnar skoruðu ekki mark í 13 mínútur og eftir 18 mínútna leik var staðan orðin 19-9 fyrir Selfoss, hreint ótrúlegur leikkafli. ÍR stelpurnar náðu þó að klóra örlítið í bakkann í lokinn þar sem að Selfoss stelpurnar slökuðu örlítið á í lokinn og endaði leikurinn 21-14. 

Í heildina litið þá var seinni hálfeikurinn mjög góður en fyrri hálfleikurinn má aldrei sjást aftur hjá stelpunum. Gaman var að sjá nýja hluti og eru Hrafnhildur Hanna og Esther Halls farnar að ná mjög vel saman á línununni ásamt því að Guðlaug Stella er að koma til baka eftir erfið meiðsli.

Bestar í liði Selfoss (Í seinni hálfleik, þar sem að sá fyrri er ekki marktækur) voru þær Birta Rós Antonsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir ásamt því að Kristrún var spræk varnarlega séð en hefur sýnt að hún getur betur í sókn.
 
Tölfræði
Kristrún Steinþórsd. 8 mörk úr 18 skotum og 6 brotin fríköst.
Hrafnhildur Hanna Þrastard. 6 mörk úr 8 skotum, 4 unna bolta, 2 fiskuð víti og 2 brotin fríköst.
Díana Sigmarsd. 3 mörk úr 10 skotum og 5 brotin fríköst.
Esther Hallsd. 2 mörk úr 3 skotum, 1 brotið fríkast.
Guðrún Bína Ingólfsd. 1 mark úr 2 skotum, 1 brotið fríkast og 1 unnin bolti.
Gerður Ósk Ævarsd. 1 mark úr 2 skotum og 2 brotin fríköst
 
Birta Rós Antonsd. Varði 14 skot og fékk á sig 14 mörk (50% markvarsla)
 
Næsti leikur er bikarleikur gegn Fram sunnudaginn 23 Nóvember í Vallaskóla.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta