Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.11.2008 | Handboltaakademía

Góđur sigur 91 á ÍR

91-lið Selfoss lék í gær við heimamenn í ÍR í gær. Okkar menn höfðu sigur 32-21 eftir að hafa leitt í hálfleik 14-12. Selfyssingar fóru ágætlega af stað í leiknum og komust í 5-2 en þá kom hörmulegur kafli þar sem menn hættu að sækja á markið og horfðu á ÍR-inga taka öll fráköst sem í boði voru og var tekið leikhlé er ÍR-ingar voru komnir yfr 6-9. Selfyssingar náðu að snúa leiknum sér í vil og leiddu 14-12 í hálfleik.

Selfyssingar juku svo við forskot sitt jafnt og þétt í síðari hálfleik og var því að þakka gríðarlega sterkur varnarleikur og góð markvarsla. Sóknarleikurinn gekk engu að síður þokkalega og gerðu leikmenn marga góða hluti þar þó klaufaleg mistök hafi skotið upp kollinum inn á milli.

Lokatölur eins og áður segir 32-21 fyrir Selfoss sem verður að teljast frábært þar sem Austurberg er erfiður völlur heim að sækja. Þetta er sigur liðsheildarinnar fyrst og fremst. Enginn leikmanna lék undir 30 mínútum og allir skila miklu framlagi og skiptir það þetta lið miklu máli. Til dæmis tekur Matthías einungis 4 skot í leiknum sem er afar lítið á þeim bænum. Í staðinn er komið áður týnt línuspil.

Tölfræði:

Árni Steinn Steinþórssson 7 mörk og 10 skot, 3 stoðsendingar og 7 brotin fríköst

Örn Þrastarson 6 mörk úr 7 skotum og tapar 3 boltum

Andri Hrafn Hallsson 5 mörk og 7 skot og 2 stoðsendingar

Matthías Örn Halldórsson 3 mörk og 4 skot, 3 stoðsendingar, 3 fráköst og 9 brotin fríköst

Þór Davíðsson 3 mörk úr jafnmörgum tilraunum, 6 brotin fríköst, 2 stolnir boltar og 2 fráköst

Aðalsteinn Halldórsson 3 mörk úr 6 skotum og 3 stoðsendingar

Anton Freyr Traustason 2 mörk úr 3 skotum

Andri Már Sveinsson 2 mörk úr 3 skotum

Sigurþór Þórsson 5 brotin fríköst

Trausti Eiríksson 1 skot en ekkert mark og tapaði einum bolta

Sverrir Andrésson varði 21 skot, átti 5 stoðsendingar og skoraði eitt mark.

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta