Selfoss-strákarnir 6. flokki unnu tvöfaldan sigur í annarri umferð Íslandsmótsins sem fór fram um helgina. Öll lið landsins í þessum aldursflokki vorum saman komin á fyrsta stórmótinu af fimm, þar sem um 600 keppendur kepptu í 60 liðum. Keppt er í flokki A-, B- og C-liða. Sigraði Selfoss í flokki A- og B-liða, en töpuðu einum leik í flokki C-liða og unni silfur þar í þetta sinn. Á síðasta móti unnu Selfyssingar þrefalt
Í fyrstu deild með Selfoss í A-liðum léku Þróttur, ÍBV, KR, Haukar og Víkingur. B-liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári og þeir unnu alla sína leiki sannfærandi, þeir unnu HK, Val, Stjörnuna, FH og Gróttu. Í flokki C-liða var Selfoss með tvö lið, C1 vann alla sína leiki frekar stórt en tapaði síðan ÍBV með einu marki. Í liði C2 eru líka allir leikmenn á yngra ári, þeir unnu örugga sigra í sínum leikjum en töpuðu naumlega fyrir ÍR og komust þar af leiðandi ekki upp í efstu deild en stóðu sig engu að síður frábærlega.
Alls unnust 22 leikir af þeim 24 sem Selfoss spilaði. Sannarlega frábær árangur.
