6. flokkur kvenna stóð sig vel á Íslandsmótinu sem haldið var í Fylkisheimilinu í Árbænum um helgina. Selfoss sendi A- og B-lið á mótið og stóðu bæði lið sig vel.
A-liðið spilaði í efstu deild og hélt sæti sínu þar en þær unnu, HK og Stjörnuna, gerðu jafntefli við Fylki og töpuðu fyrir ÍR, Fram og ÍBV. Þær verða því aftur á meðal þeirra bestu á næsta móti.
B liðið spilaði í 3. deild og stóð sig ágætlega. Þær unnu tvö leiki og töpuðu tveimur og lentu því í þriðja sæti. Stelpurnar byrjuðu flestar að æfa í haust fyrir utan tvær. Þetta verður því að teljast góður árangur á svo stuttum tíma, en á seinasta móti töpuðu þær öllum sínum leikjum.
Stelpurnar mega vera stoltar af árangri sínum og setja sér það markmið að gera enn betur næst.
